Hlaðvörp Kjarnans í Strætó-appinu

Bílveiki og viljinn til að ýta undir hlaðvarpsmenningu á Íslandi varð kveikjan að því að hlaðvörp eru nú aðgengileg í einu vinsælasta appi landsins, Strætó-appinu.

Umsjónarmenn hlaðvarpanna sem nálgast má í Strætó-appinu.
Umsjónarmenn hlaðvarpanna sem nálgast má í Strætó-appinu.
Auglýsing

Strætó hefur bætt þeim eig­in­leika við Strætó-app­ið, sem um 96.500 manns hafa sótt, að hægt er að hlusta á hlað­vörp í því. Á meðal þeirra þeirra hlað­varpa sem eru aðgengi­leg í nýj­ustu upp­færslu apps­ins eru öll hlað­vörp Kjarn­ans. Auk þess er þar hægt að hlusta á hlað­vörp frá Alvarp­inu, Fót­bolta.­net, Fíla­lag og Í frjettum er þetta elzt.

Sem stendur býður hlað­varp Kjarn­ans upp á tólf mis­mun­andi þætti. Þeir eru Hismið, Tækni­varp­ið, Glim­merkok­teill­inn, Hefn­end­urn­ir, Aðför­in, Klikk­ið, Sam­tal við sam­fé­lag­ið, Kvikan, Sparkvarp­ið, Stóru mál­in, Þetta er merki­legt og Fex-hatt­ur­inn.

Ótrú­leg flóra af góðum íslenskum hlað­vörpum

Mynd: Skjáskot.Guð­mundur Heiðar Helga­son, mark­aðs- og upp­lýs­inga­full­trúi Strætó, segir að hug­myndin af því að gera hlað­vörp aðgengi­leg í Strætó-app­inu hafi meðal ann­ars sprottið upp frá því að hann hafi langað til að ýta undir hlað­varps­menn­ingu á Íslandi. „Ég stund­aði nám út í London í eitt ár og not­aði strætó eða lest­ina á hverjum degi. Ég var alltaf með hlað­vörp í eyr­unum til þess að stytta mér stund­irn­ar. Ég get ekki lesið eða verið mikið í sím­anum á ferð þar sem ég verð hræði­lega bíl­veik­ur, þannig að hafa afþr­ey­ingu í eyr­unum var full­komin lausn. Það var mikil hlað­varps­menn­ing úti og þá sér­stak­lega í kringum almenn­ings­sam­göng­ur. Mig lang­aði til þess að ýta frekar undir þessa menn­ingu hérna heima og þetta verk­efni er alveg í takt við þau mark­mið sem ég vinn eftir til að byggja upp ímynd Strætó. Svo má ekki gleyma að það er til ótrú­leg flóra af góðum íslenskum hlað­vörpum og okkur lang­aði að vekja frek­ari athygli á þeim meðal not­enda Strætó.“

Auglýsing

Guð­mundur segir að honum sjálfum þyki best að hlusta á hlað­vörp þegar hann er einn að ferð­ast. „Hvort sem að ég sé að fara í flug eða í strætó þá verður ferðin alltaf aðeins þægi­legri með gott hlað­varp í eyr­un­um. Það sem ég tel vera öðru­vísi við hlað­vörp, í sam­an­burði við t.d. tón­list, er að fólk sest niður og hlustar að ein­beit­ingu á hlað­vörp á meðan tón­list verður oft að hálf­gerðum bak­grunns­há­vaða.“

Hlað­varps­senan mun bara stækka

Dom­in­o´s Pizza á Íslandi hefur verið frum­kvöð­ull því að aug­lýsa í hlað­vörpum Kjarn­ans. Anna Fríða Gísla­dótt­ir, mark­aðs­stjóri Dom­in­o´s, segir að fyr­ir­tæk­inu hafi ein­fald­lega þótt þetta nýr og spenn­andi vett­vangur til þess að prófa að aug­lýsa vörur þess. „Hlað­varps­senan á Íslandi er í stöðugri þróun og ég hef á til­finn­ing­unni að hún muni bara stækka, bæði hvað hlust­endur og þætti varð­ar.“

Aðspurð um hver upp­á­halds hlað­vörp hennar á Kjarn­anum séu seg­ist hún aldrei missa af sínum bestu mönnum í Hism­inu. „Svo hlusta ég reglu­lega á Tækni­varp­ið. Glim­merkok­teill­inn er líka að koma skemmti­lega á óvart en síðan fer það eig­in­lega eftir efnum hvað ég hlusta á. Ég er í raun að segja að ég hlusta á þau öll.“

Liðsmenn Sparkvarpsins.Anna Fríða segir að hún trúi því að sífellt fleiri séu að átta sig á því hvað hlað­vörp geti verið skemmti­leg og fræð­andi. Þau séu lika meiri flötur fyrir sam­töl milli ein­stak­linga frekar en t.d. það að hlusta á tón­list. „Fyrir mig per­sónu­lega hvetja hlað­vörp mig enn frekar að vera aktív en ég fer reglu­lega í göngutúr eða þríf heim­ilið hátt og lágt þegar ég sé að það er komið nýtt og spenn­andi hlað­varp inn. Það getur ekki verið annað en jákvætt. Þau erlendu hlað­vörp sem ég hlusta á leggja mikið upp úr fram­leiðslu og í raun er oft eins og maður sé að hlusta á heim­ild­ar­mynd frekar en spjall. Mér finnst hins vegar gaman að hlusta á óform­leg spjöll en held að meira unnin hlað­vörp muni koma inn í auknum mæli hér­lend­is.“

Stjórn­endur Sparkvarps­ins, hlað­varps Kjarn­ans um knatt­spyrnu, tóku upp nýjasta þátt sinn um borð í Strætó þar sem þeir fóru meðal ann­ars yfir hvernig hinn jap­anski popp­kúltur bjó til hinn full­komna leik­mann. Hlað­vörp Kjarn­ans má einnig nálg­ast hér.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent