Segir svör ráðherra ekki fullnægjandi

Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis, fannst Ásmundur Einar ekki gefa nægilega skýr svör á fundi nefndarinnar í morgun.

Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis á fundi í morgun.
Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis á fundi í morgun.
Auglýsing

Svör Ásmundar Ein­ars Daða­sonar félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra eru ekki full­nægj­andi, að mati Hall­dóru Mog­en­sen, for­manns vel­ferð­ar­nefndar Alþing­is. Ráð­herr­ann sat fyrir svörum nefnd­ar­manna á fundi í morgun vegna umfjöll­unar Stund­ar­innar fyrir helgi um störf Braga Guð­brands­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

„Það var eins og gengur og ger­ist að það er talað í kringum hlut­ina og forð­ast að svara já eða nei,“ segir hún í sam­tali við Kjarn­ann eftir fund­inn. Hún segir að það væri ósk­andi að fá full­nægj­andi svör en bætir við að hún sé orðin vön því á þessum vinnu­stað að fólk svari yfir­leitt ekki með afger­andi hætti.

Henni finnst ráð­herra ekki svara nægi­lega skýrt hverjar raun­veru­legar nið­ur­stöður rann­sóknar á störfum Braga voru. „Það var það sem ég var að fiska eft­ir,“ segir hún. Þau í nefnd­inni muni þrýsta á að trún­aði verði aflétt af þessum skjölum og þá muni koma í ljós þær upp­lýs­ingar sem hún hafi verið að reyna að fá frá ráð­herra á fund­in­um.

Stundin hefur birt frum­gögn máls­ins, það er að segja tölvu­pósta og sím­talsút­drátt með per­sónu­grein­an­legum og við­kvæmum upp­lýs­ingum afmáðum, til að varpa ljósi á þátt Braga í mál­inu.

Auglýsing

Til­nefn­ing Braga á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­innar

Vel­ferð­ar­nefnd mun hitta Braga á mið­viku­dag­inn næst­kom­andi en hann var búinn að biðja um að koma á fund nefnd­ar­inn­ar. Hall­dóra mun senda honum fund­ar­boð í dag en ekki er búið að ákveða hvort fund­ur­inn verði opinn eður ei en að sögn Hall­dóru mun það vera ákveðið seinna í dag.

Hall­dóra segir að til­nefn­ing Braga sé nú algjör­lega á ábyrgð rík­is­stjórn­ar­inn­ar, þ.e. hvort hún ákveður hvort hún dragi til­nefn­ing­una til baka eða ekki. Frest­ur­inn rennur út í dag. Ef til­nefn­ingin verður dregin til baka þá bendir Hall­dóra á að ekki sé mögu­leiki á að til­nefna annan aðila, þar sem frest­ur­inn verður runn­inn út.

Ásmundur Einar sagði á fund­inum í morgun að fram­boð Braga til þessa emb­ættis væri ekki með beinum hætti á höndum hans ráðu­neyt­is, heldur utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og fasta­nefndar Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í New York. Hann sagði að þætt­ist vita að utan­rík­is­ráðu­neytið sé að fylgj­ast vel með þessu máli. Aðspurður um hvort for­svar­an­legt sé að skipa Braga í emb­ættið hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum sagði Ásmundur Einar að þegar ein­stak­lingur hafi unnið í þessum mála­flokki í ára­tugi sé ekki óeðli­legt að upp komi mál sem valdi ágrein­ingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent