Ásmundur vill óháða úttekt á störfum Braga

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra kom fyrir velferðarnefnd vegna starfa Braga Guðbrandssonar fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu. Sagði framboð Braga til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna á höndum utanríksiráðuneytisins, ekki félagsmála.

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra kom fyrir velferðarnefnd í dag.
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra kom fyrir velferðarnefnd í dag.
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son félags­mála­ráð­herra hefur lagt það til við for­sæt­is­ráð­herra að fram fari óháð úttekt á störfum Braga Guð­brands­sonar fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Þetta kom fram í máli ráð­herra á opnum fundi vel­ferð­ar­nefndar á Alþingi í dag.

Í umfjöllun Stund­ar­innar á föstu­dag kom fram að Bragi hafi beitt sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dægur sína sem hann var grun­aður um að kyn­ferð­is­brot gegn.

Bragi hefur verið til­nefndur fyrir Íslands hönd til setu í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu­þjóð­anna sem óform­legur full­trúi Norð­ur­land­anna.

Auglýsing

Ásmundur sagði á fund­inum í morgun að fram­boð Braga til þessa emb­ættis væri ekki með beinum hætti á höndum hans ráðu­neyt­is, heldur utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og fasta­nefndar Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í New York. Hann sagði að þætt­ist vita að utan­rík­is­ráðu­neytið sé að fylgj­ast vel með þessu máli. Aðspurður um hvort for­svar­an­legt sé að skipa Braga í emb­ættið hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum sagði Ásmundur að þegar ein­stak­lingur hafi unnið í þessum mála­flokki í ára­tugi sé ekki óeðli­legt að upp komi mál sem valdi ágrein­ingi.

Ásmundur sagði við upp­haf fund­ar­ins þegar hann ávarp­aði nefnd­ina að hann teldi nauð­syn­legt að form­gera betur sam­skipti milli aðila í mála­flokkn­um, skýra betur verk­ferla og mik­il­vægt að flytja eft­ir­lits­þátt Barna­vernd­ar­stofu til nýrrar eft­ir­lits­stofn­un­ar.

Hann sagði það hafa verið nið­ur­stöðu skoð­unar félags­mála­ráðu­neyt­is­ins að Bragi hafi ekki brotið af sér í starfi og þannig ekki  til­efni til áminn­ing­ar. Nokkur mál hafi verið til skoð­unar eitt þeirra hafi verið skoðað sér­stak­lega, sú nið­ur­staða sé við­kvæm og bundin trún­aði.

Ásmundur sagði ástæðu þess að langan tíma hafi tekið að skila vel­ferð­ar­nefnd­inni öllum gögnum máls­ins þá að umfang þeirra væri gríð­ar­lega mik­ið, um væri að ræða í kringum þús­und blað­síð­ur. Hann hafi óskað eftir því við ráðu­neytið að farið verði yfir þá afstöðu, kall­aðir verði til lög­fróðir ein­stak­lingar í upp­lýs­inga- og per­sónu­vernd­ar­málum til að athuga hvort hægt sé að aflétta trún­aði til að hægt sé að birta nið­ur­stöð­una.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent