Ásmundur gerði „reply all“

Halldóra Mogensen segir Ásmund Friðriksson sjálfan hafa gert mistök sem leiddu til þess að tölvupóstur hans hefði birst í fjölmiðli. Ásmundur hafði ásakað Pírata um að „mígleka“ upplýsingum í Stundina og krafist afsagnar Halldóru.

Ásmundur Friðriksson
Auglýsing

Hall­dóra Mog­en­sen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar og þing­maður Pírata, segir Ásmund Frið­riks­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks, sjálfan bera ábyrgð á því að svar hans við boðun á fund vel­ferð­ar­nefndar í gær hafi ratað til fjöl­miðla. 

Í sam­tali við mbl.is segir Hall­dóra að Ásmundur hafi gert „reply all“ og þannig svarað öllum sem fengu umræddan póst, en ekki bara henni sem sendi hann upp­runa­lega. Við það send­ist svar Ásmundar á alla með­limi vel­ferð­ar­nefnd­ar, for­seta þings­ins, ráð­herra og þing­flokk Pírata. „Þetta voru mis­­tök af hans hálfu. Það átti ekki að vera neinn trún­aður um þessa til­­kynn­ingu. Ég get ekki verið ábyrg fyr­ir því ef hann skoðar ekki hvert póst­­­ur­inn er að fara,“ segir Hall­dóra við mbl.­is.

Auglýsing
Ásmundur svar­aði boð­inu á fund­inn með eft­ir­far­andi hætti: „Sæl. Ég verð ekki á þess­um fundi og ég les ekki Stund­ina, en er það fjöl­­mið­ill sem fólk tek­ur mark á aðrir en Pírat­­ar. Bkv Ási Frið­riks.“ Skömmu síðar birt­ist frétt á Stund­inni um svar Ásmund­ar.

Hann brást við þessu í gær­kvöldi með því að skrifa á Face­book-­síðu sína að Hall­dóra væri rúin trausti og ætti að segja af sér. Þar sagð­ist Ásmundur ekki hafa gert sér grein „fyrir því að for­­maður vel­­ferð­­ar­­nefnd­­ar, Hall­­dóra Mog­en­sen hafði bætt þing­­flokki Pírata inn í tölvu­­póst­­­send­ingar sem ein­­göngu áttu að ber­­ast nefnd­inni. Það er auð­vitað grafal­var­­legt mál að for­­mað­­ur­inn sé að blanda þing­­flokki Pírata inn í tölvu­­póst­­­send­ingar nefnd­­ar­innar sem míg­­lekur upp­­lýs­ingum úr þing­inu til Stund­­ar­innar eins og nú hefur sann­­ast.“

Halldóra Mogensen.Ásmundur taldi málið sanna að Píratar væru í beinu sam­bandi við Stund­ina og gengu erindi mið­ils­ins á Alþingi og fyrir vini og vanda­menn. „Í þeirri orra­hríð sem gengur yfir félags­­­mála­ráð­herra og Braga Guð­brands­­son má vart á milli sjá hvor er fljót­­ari með frétt­irn­­ar, þing­­menn Pírata eða Stundin og sam­­starfið minnir á þá félaga Baldur og Konna sem töl­uðu einum rómi búk­tal­ar­ans. Nú er verið að óska eftir sér­­­stökum fundi í vel­­ferð­­ar­­nefnd, bundnum trún­­aði um mál­efni sem ræða á við Braga Guð­brands­son. Barna­vernd­­ar­­mál njóta mestan trún­­aðar og það er því óðs manns æði að ætla sér að ræða trún­­að­­ar­­mál í vel­­ferð­­ar­­nefnd á meðan ekki er hægt að halda trúnað á tölvu­­pósti milli nefnd­­ar­­manna án þess að hann birt­ist í Stund­inni. For­­maður nefnd­­ar­innar er rúin trausti og ætti að segja af sér.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent