Ein kona og tveir karlar sóttu um embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð og þjár konur og fimm karlar um stöðu skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla.
Þetta kemur fram í frétt mennta- og menningarmálaráðuneytisins í dag.
Umsóknarfrestur um embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð rann út mánudaginn 30. apríl síðastliðinn. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust umsóknir um embættið frá þremur umsækjendum. Umsækjendur eru Hulda Birna Baldursdóttir framkvæmdastjóri, Ólafur Haukur Johnson fyrrverandi skólastjóri og Steinn Jóhannsson, settur skólameistari.
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla rann einnig út mánudaginn 30. apríl síðastliðinn og bárust ráðuneytinu átta umsóknir um stöðuna.
Umsækjendur eru Elvar Jónsson skólameistari, Guðjón Ragnar Jónasson framhaldsskólakennari, Hulda Birna Baldursdóttir framkvæmdastjóri, Kolbrún Kolbeinsdóttir skólastjóri, Kristrún Birgisdóttir sérfræðingur, Magnús Ingvason aðstoðarskólameistari, Ólafur Haukur Johnson fyrrverandi skólastjóri og Þórhallur Halldórsson framhaldsskólakennari.
Í frétt ráðuneytisins kemur fram að miðað sé við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í embættin til fimm ára frá og með 1. ágúst næstkomandi.