Trump dregur Bandaríkin út úr Íran-samkomulaginu

Donald Trump sagði fyrir stundu að fjölþjóðlegt kjarnorkusamkomulag við Íran, frá 2015, hafi verið stór mistök. Hann kallaði Íran ógnarstjórn.

h_53647472.jpg Donald Trump forseti bandaríkin
Auglýsing

Don­ald Trump Banda­­ríkja­­for­­seti til­­kynnti fyr­ir stundu að hann ætli að draga Banda­­rík­­in úr kjarn­orku­sam­komu­lag­inu við Írani. Hann sagði sam­komu­lag­ið, sem var gert árið 2015 í tíð Barack Obama, hafa verið stór mis­tök sem hefðu gert Íran mögu­legt að styrkja hryðju­verka­starf­semi og vinna áfram leyni­lega að upp­bygg­ingu kjarn­orku­vopna. 

Hann vitn­aði til gagna frá Ísra­els­stjórn sem sýndu með óyggj­andi hætti að Íran væri að brjóta gegn sam­komu­lag­inu.

Auglýsing


Sam­komu­lagið er frá árinu 2015 en Banda­rík­in, Frakk­land, Bret­land, Rúss­land, Kína, Þýska­land og Evr­ópu­sam­bandið stóðu að sam­komu­lag­inu við Íran, sem þving­aði Íran­stjórn til að tak­marka kjarn­orku­vopna­fram­leiðslu sína, og þá voru efna­hags­þving­anir gagn­vart Íran felldar nið­ur. 



Þetta opn­aði meðal ann­ars á mögu­leik­ann á því fyrir Íran að selja olíu á heims­mark­aði, en alþjóð­legar efna­hags­þving­anir höfðu gert það að verk­um, að þau við­skipti voru land­inu erf­ið.

Trump sagði að það væri hans mark­mið, að færa Íran aftur í hendur fólks­ins í land­inu. Það ætti að ráða ferð­inni, en ekki ógn­ar­stjórnin sem hefði haldið um valda­þræð­ina alltof leng­i. 

Trump sagð­ist enn fremur ætla að boða harðar efna­hags­legar þving­anir gagn­vart Íran, og þær yrðu „þær hörðustu, nokkru sinn­i“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent