Ný vefsíða á vegum RÚV farin í loftið

Á RÚV núll framleiðir ungt fólk efni fyrir jafnaldra sína og vonast verkefnastjóri UngRÚV til að síðan slái í gegn eins og KrakkaRÚV hefur gert.

RÚV núll
RÚV núll
Auglýsing

Nýjum vef hefur verið hleypt af stokk­unum hjá Rík­is­út­varp­inu. Hann ber nafnið RÚV núll og á að höfða til ungs fólks á aldr­inum 15 til 29 ára. Sam­kvæmt því sem segir á vef­síðu RÚV er mark­miðið að ungt fólk geti alltaf stólað á að RÚV bjóði upp á fyrsta flokks efni sem vekur áhuga, skemmtir og fræðir ásamt því að vekja upp spurn­ingar og umræðu.

Atli Már Steinarsson Mynd: RúvSíðan var opnuð á fimmtu­dag­inn í síð­ast­lið­inni viku og eru fjórir starfs­menn í fullu starfi á RÚV núll. Atli Már Stein­ars­son leysir Snærósu Sindra­dóttur af sem verk­efna­stjóri UngRÚV en hún er nú í fæð­ing­ar­or­lofi. Auk Atla Más eru tveir þátta­stjórn­endur sem sjá um að gera tveggja tíma þátt sem streymt er dag­lega fyrir og eftir hádegi á vefn­um, þau Ísak Hin­riks­son og Helga Mar­grét Hösk­ulds­dótt­ir. Fjórði starfs­mað­ur­inn er fram­leið­and­inn og sér hann meðal ann­ars um að fram­leiða efni fyrir sjón­varp­ið. 

Atli Már segir í sam­tali við Kjarn­ann að vef­ur­inn eigi að vera eins­konar heim­ili fyrir ungt fólk hjá RÚV. Hann segir að þau hafi horft til Norð­ur­land­anna þegar þau voru að þróa vef­inn; bæði hvað varðar hug­mynda­fræði og tón­list­ar­val.

Auglýsing

Nauð­syn­legt að rödd ungs fólks fái að heyr­ast

Á RÚV núll er efni safnað saman sem fram­leitt er í hús­inu og höfðar sér­stak­lega til þessa ald­urs­hóps. „Efn­inu verður miðlað eftir þeim leiðum sem ungt fólk vill nota, þegar það vill njóta þess. Þar að auki hefur öfl­ugt ungt dag­skrár­gerð­ar­fólk verið fengið til að búa til fjöl­breytt efni sem end­ur­speglar dag­legt líf og áhuga­svið fólks á þessum aldri,“ segir í lýs­ingu á vefnum á RÚV. 

Vegna þess að síðan er svo nýfarin í loftið þá hefur Atli Már ekki fengið mikil við­brögð við síð­unni nema inn­an­húss og frá fólki í kringum þau. Við­brögðin hafa verið góð, að hans sögn. 

Hann segir nauð­syn­legt að þjón­usta þennan hóp og telur hann að ungt fólk verði að fá að láta rödd sína heyr­ast. Þess vegna sé mikil þörf fyrir stöð eða vef sem þennan hjá Rík­is­út­varp­in­u. Hann segir enn fremur mik­il­vægt að tala ekki niður til fólks á þessum aldri, það sé klárt og skemmti­leg og hafi margt fram að bjóða.

„Krakk­aRÚV er búið að slá í gegn og von­andi getum við leikið það eft­ir,“ segir hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent