Icelandair Group hefur ákveðið að selja Icelandair Hotels og fasteignir sem tilheyra hótelrekstri, en samtals rekur fyrirtækið 13 hótel. Þá rekur fyrirtækið einnig tíu sumarhótel undir merkjum Eddu hótela um allt land.
Í tilkynningu frá félaginu segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, að fyrirtækið sé nú að stíga skref í samræmi við nýtt skipulag, sem kynnt var í upphafi ársins. „Við kynntum nýtt skipulag í upphafi ársins þar sem við skiptum starfsemi félagsins í tvennt; annars vegar alþjóðaflugstarfsemi og hins vegar fjárfestingar í flugstarfsemi og ferðaþjónustu. Við stígum nú næsta skref og höfum ákveðið að hefja ferli sem miðar að því að selja meirihluta í hótelfélagi okkar; Icelandair Hotels. Við horfum með sama hætti á þær fasteignir sem tilheyra þessum rekstri. Icelandair Hotels er í fremstu röð á Íslandi, hefur sterka markaðsstöðu, er vel rekið og með frábært starfsfólk. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á félaginu að undanförnu, bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Markmið okkar með þessari breytingu er að skerpa enn frekar á kjarnastarfsemi okkar, alþjóðaflugstarfseminni. Þar ætlum við að fjárfesta í frekari vexti félagsins, í stafrænum lausnum, aukinni sjálfvirkni og nýjum flugvélum,“ segir Björgólfur.
Gengi hlutabréfa Icelandair Group hefur fallið nokkuð að undanförnu, eða um 14,1 prósent það sem af er ári. Markaðsvirði félagsins er nú 65 milljarðar en mest hefur það verið um 180 milljarðar á undanförnum fimm árum.
Hótelin þrettán sem Icelandair Group reka eru Reykjavík Natura, Reykjavík Marina, Hilton Reykjavík Nordica, Canopy Reykjavik | City Centre, Reykjavík Konsúlat Hótel og Hótel Alda. Á landsbyggðinni eru Icelandair hótel á Akureyri, við Mývatn og á Héraði. Einnig eru sérleyfishótel á Flúðum, Klaustri, Hamri og í Vík.
Um er að ræða alls 1.937 herbergi á landinu öllu, 876 í Reykjavík og 450 herbergi á landsbyggðinni í rekstri allt árið en þar að auki 611 Eddu hótelherbergi í sumarrekstri. Þá stefna Icelandair Hotels að opnun nýs hótels við Austurvöll í samstarfi við Hilton árið 2019.
Samhliða ákvörðun um að setja Icelandair Hotels í söluferli hefur verið ákveðið að Iceland Travel og VITA verði hluti af kjarnastarfsemi Icelandair Group. Tilgangur þess er að styrkja enn frekar sölustarfsemi á pakkaferðum og tengdum þjónustuþáttum innan Icelandair Group.
Hagnaður Icelandair Group í fyrra nam um 37 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur um fjórum milljörðum króna. Fyrirtækið var með eigið fé upp á tæplega 600 milljónir Bandaríkjadala í lok árs, eða sem nemur um 60 milljörðum króna.