Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er önnur tveggja íslenskra kvenna á lista Apolitical yfir 100 áhrifamestu einstaklinga í jafnréttismálum fyrir árið 2018.
Þetta kemur fram í frétt forsætisráðuneytisins í dag.
Hin er Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrverandi ráðherra og borgarstjóri en hún hefur unnið fyrir Women Political Leaders.
Apolitical, sem er alþjóðlegur stefnumótunarvettvangur, kynnti listann í morgun. Í frétt ráðuneytisins segir að á listanum séu þeir einstaklingar sem þykja hafa skarað fram úr þegar kemur að jafnréttismálum hvort sem er með rannsóknum, stefnumótun, baráttu fyrir málefnum sem tengjast jafnrétti eða öðru.
Malala Yousafzai aðgerðasinni, Melinda Gates annar stofnanda Bill & Melinda Gates foundation, Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada og Julia Gillard fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu eru einnig á listanum.