Verðmiði Heimavalla heldur áfram að falla

Á fyrsta degi í viðskiptum lækkaði verðmiðinn á Heimavöllum um 11 prósent og í dag hefur verðmiðinn haldið áfram að lækka.

Fasteignir hús
Auglýsing

Verð­mið­inn á fast­eigna­fé­lag­inu Heima­völlum hefur haldið áfram að falla í dag, en virði félags­ins lækk­aði um 11 pró­sent á fyrsta við­skipta­degi félags­ins á aðal­l­ista kaup­hallar Íslands í gær. Í dag hefur virðið haldið áfram að falla, og er gengi bréfa félags­ins nú komið í 1,2 en það var 1,39 við skrán­ingu félags­ins á mark­að. 

Lækk­unin í dag er 3,23 pró­sent og hefur verð­mið­inn því lækkað um meira en tvo millj­arða frá skrán­ingu, en hann var 15,6 millj­arðar króna þegar félagið var skráð á mark­að. 

Efna­hagur félags­ins er stór, en heild­ar­eignir félags­ins nema um 55,9 millj­örðum króna, og eru að langstærstu hluta í fast­eignum sem félagið á og leigir út. Eigið fé félags­ins var við skrán­ingu 17,6 millj­arðar króna.

Auglýsing

Eins og greint var frá í dag, í ítar­legri frétta­skýr­ingu á vef Kjarn­ans, er íslenska ríkið alltum­lykj­andi í rekstri félags­ins og sögu þess, þar sem félagið er með stærstan hluta fjár­mögn­unar sinnar hjá Íbúða­lána­sjóði, og hefur einnig keypt eignir af rík­inu í gegnum tíð­ina. 

Stálskip er stærsti hluthafi Heimavalla.Sam­kvæmt lista yfir stærstu hlut­hafa Heima­valla er félagið Tún­fljót ehf. 5. stærsti hlut­hafi félags­ins, en það er í eigu Magn­úsar Pálma Örn­ólfs­son­ar, fjár­festis og fyrr­ver­andi starfs­manns Glitnis banka, en hann var um tíma yfir­maður eigin við­skipta bank­ans.

Sam­kvæmt við­skipta­yf­ir­liti frá því í gær, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, þá færði Tún­fljót ehf. um það bil einn tíunda af eign sinn í Heima­völlum í gær yfir í annað félag.

Við skrán­ingu átti félagið tæp­lega 500 millj­ónir hluta í félag­inu, eða um 4,4 pró­sent af heild­ar­hlutafé félags­ins. Eftir færslu gær­dags­ins var hlut­ur­inn kom­inn í 3,99 pró­sent, og heild­ar­eignir í 449 millj­ónir hluta.

Leið­rétt­ing: Í upp­haf­legri frétt var sagt að Tún­fljót hefði selt einn tíunda af eign sinni, en hið rétta er að hlut­ur­inn var færður í annað félag, í eigum Magn­úsar Pálma, að því er hann hefur stað­fest sjálfur við Frétta­blaðið. Hefur umfjöll­unin verið upp­færð í sam­ræmi við þetta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent