Sósíalistaflokkur Íslands mun ekki taka þátt í fyrirhuguðum viðræðum um meirihlutasamstarf í borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa flokksins, og Daníel Erni Arnarssyni, varaborgarfulltrúa hans, sem birt var í kvöld.
Sósíalistaflokkurinn hefur verið orðaður við þátttöku í tvenns konar meirihluta, annars vegar að hann gæti komið í stað Vinstri grænna í meirihluta með Viðreisn, Pírötum og Samfylkingu, og hins vegar að hægt væri að mynda meirihluta með Samfylkingu, Pírötum, Vinstri grænum og Flokki fólksins. Samkvæmt upplýsingum Kjarnans hefur áhrifafólk innan Vinstri grænna reynt að tala fyrir síðasti kostinum en við litlar undirtektir.
Í yfirlýsingunni segir að ákvörðunin sé tekin eftir samráð við félaga þeirra í Sósíalistaflokknum. „Framboð sósíalista var framboð hinna valdalausu í borginni; láglaunafólks, innflytjenda, leigjenda, eftirlaunafólks, öryrkja og annarra hópa sem hefur verið haldið frá völdum. Þessir hópar eru sjaldnast ávarpaðir, á þá er ekki hlustað og ekki er gengið út frá hagsmunum þeirra þegar ákvarðanir eru teknar. Góður stuðningur við framboð sósíalista færði þessum hópum einn borgarfulltrúa. En einn borgarfulltrúi tjóðraður niður í meirihlutasamstarf við aðra flokka mun fá litlu áorkað. Einn borgarfulltrúi getur ekki breytt kerfinu innan frá, allra síst ef hans fyrsta verk verður að ganga inn í svo til óbreyttan meirihluta um stefnu sem sósíalistar gagnrýndu harðlega í kosningabaráttunni. En einn borgarfulltrúi getur tekið virkan þátt með félögum sínum í að byggja upp samstöðu meðal láglaunafólks, innflytjenda, leigjenda, eftirlaunafólks, öryrkja og annarra valdalausra hópa og verið farvegur fyrir baráttu þeirra inn í borgarstjórn. Þannig borgarfulltrúar viljum við vera og þannig borgarfulltrúa eru félagar okkar í Sósíalistaflokknum að kalla eftir; borgarfulltrúa sem hverfur ekki strax eftir kosningar inn í bakherbergi Ráðhússins heldur starfar áfram að uppbyggingu þeirrar hreyfingar sem sendi okkur inn í borgarstjórn. Það er okkar markmið að þjóna þessari vaxandi hreyfingu næstu árin og byggja upp með henni öfluga og róttæka hagsmunabaráttu hinna kúguðu og valdalausu. Það er aðeins með samstöðu og styrk fjöldans sem við getum breytt samfélaginu. Ekkert mun ávinnast í samningaviðræðum eins borgarfulltrúa við ríkjandi öfl.“