Formlegar viðræður hefjast á morgun milli Viðreisnar og fráfarandi meirihluta

Viðreisn, Samfylking, Píratar og Vinstri græn hefja formlegar meirihlutaviðræður á morgun. Markmið að samstarfssáttmáli verði klár fyrir 19. júní.

Þórdís Lóa og Ráðhús Reykjavíkur
Auglýsing

Óform­legar við­ræður odd­vita Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Við­reisn­ar, Pírata og Vinstri grænna um mál­efna­grunn hafa leitt til þeirrar sam­eig­in­legu nið­ur­stöðu að hefja form­legar meiri­hluta­við­ræð­ur. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Þór­dísi Lóu Þór­halls­dótt­ur, odd­vita Við­reisnar í Reykja­vík. 

Þar segir að við­ræð­urnar muni hefj­ast á morg­un, fimmtu­dag, og að t­veir full­trúar frá hverjum flokki taki þátt í þeim. „Mark­miðið er að sam­starfs­sátt­máli nýs meiri­hluta liggi fyrir í góðum tíma fyrir fyrsta borg­ar­stjórn­ar­fund nýrrar borg­ar­stjórnar 19. júní nk. ­Trún­aður mun ríkja um við­ræð­urnar en nið­ur­stöður þeirra verða kynntar þegar þær liggja fyr­ir.“

Kjarn­inn greindi frá því í morgun að ekki margt sem út af bæri til að hægt sé að ná þessum meiri­hluta sam­an. Stefnur flokk­anna fjög­urra liggja saman í skipu­lags- og sam­göngu­málum og allir eru þeir til­búnir í miklar aðgerðir til að auka enn í upp­bygg­ingu hús­næðis í borg­inni til að tryggja fleiri borg­ar­búum hús­næði á kjörum sem þeir ráða við. Í því sam­hengi má benda á að Við­reisn var með það í stefnu­skrá sinni að byggja 350 félags­legar íbúðir á kjör­tíma­bil­in­u. 

Auglýsing
Lykilfólk í Við­reisn hefur sagt í sam­tölum við Kjarn­ann að það sé ófrá­víkj­an­leg krafa að Dagur B. Egg­erts­son verði ekki áfram borg­ar­stjóri. Það þurfi nýja áferð á meiri­hlut­ann. Pawel Bar­toszek, annar borg­ar­full­trúa Við­reisn­ar, kall­aði það „slúð­ur“ á vef Rúv í dag.

Við­reisn mun fara fram á að stefna flokks­ins í atvinnu­mál­um, meðal ann­ars lækkun á fast­eigna­sköttum á fyr­ir­tæki, og í mennta­málum fái gott pláss í sátt­mála meiri­hlut­ans. Auk þess er mikil áhersla á að ein­falda kerfið þannig að þeir sem þurfi t.d. að fá ýmis athafna­leyfi geti gert það með minna flækju­stigi. Við­reisn mun líka leggja áherslu á að fastar verði haldið um rekstur borg­ar­inn­ar, en mörgum þar þykir hann ekki í nægi­lega góðum far­vegi með auk­inni skulda­söfnun í miðri upp­sveiflu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent