Framteljendur til skatts aldrei verið fleiri

Fram­telj­end­ur á skatt­grunn­skrá hafa aldrei verið fleiri en á grunn­skrá voru nú voru alls 297.674. Það eru 10.946 fleiri framteljendur en fyr­ir ári sem er fjölg­un um 3,8 prósent. Alls skiluðu 99,5 prósent framteljenda rafrænu skattframtali.

Verkamaður við vinnu
Auglýsing

Fram­telj­end­ur á skatt­grunn­­skrá hafa aldrei verið fleiri en á grunn­­skrá voru nú voru alls 297.674. Það eru 10.946 fleiri fram­telj­endur en fyr­ir ári sem er fjölg­un um 3,8 pró­sent. Fram­telj­end­um á grunn­­skrá hef­ur ekki fjölgað jafn­­­mikið síðan árið 2007 en þá fjölg­aði um 10.855.

Skatt­ar 17.973 ein­stak­l­inga voru áætl­aðir en það er um 6,04% af heild­­ar­­fjölda. Nokk­ur hluti áætl­­ana skýrist af fram­­töl­um sem rík­­is­skatt­­stjóri vinn­ur fyr­ir fram­telj­end­ur en slík fram­­töl hafa sömu rétt­ar­á­hrif og þegar skatt­­stofn­ar eru áætl­að­ir.

Á morg­un  munu inn­­­eign­ir verða lagðar inn á banka­­reikn­inga þeirra fram­telj­enda sem eiga inni hjá rík­­is­­sjóði eft­ir álagn­ingu. Þeir fram­telj­end­ur sem ekki hafa banka­­reikn­ing geta vitjað inn­­­eigna hjá inn­­heimt­u­­mönn­um rík­­is­­sjóðs, í Reykja­vík toll­­stjóra.

Auglýsing

Tekju­skattur og útsvar sveit­ar­fé­laga höfðu að mestu verið inn­heimt í stað­greiðslu. Álagn­ing er end­an­legt upp­gjör skatta, auk þess sem lagt er á útvarps­gjald, gjald í Fram­kvæmda­sjóð aldr­aða, slysa­trygg­ing­ar­gjald vegna heim­il­is­starfa, og trygg­ing­ar­gjalds ein­stak­linga í eigin rekstri. Barna­bætur og vaxta­bætur eru þar að auki reikn­aðar við álagn­ingu.

Hefð­bund­in papp­írs­fram­­töl heyra brátt sög­unni til en nú skil­uðu 99,5 pró­sent fram­telj­enda ra­f­rænu skatt­fram­tali. Fram­töl eru að mestu leyti unnin fyrir fram af rík­is­skatt­stjóra. Fram­tals­gerðin er að mestu leyti fólin í yfir­lestri og stað­fest­ingu upp­lýs­inga. Þannig hafa betri skil gagna og aðstoð við fram­telj­endur fækkað villum og ein­faldað fram­tals­gerð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent