Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 12,8 prósent frá yfirstandandi ári og verður 8.364 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati fyrir árið 2019 sem Þjóðskrá Íslands birti í dag.
Fasteignamatið hækkar á 99,2 prósent eigna en lækkar á 0,8 prósent eigna frá fyrra ári.
Samanlagt mat íbúða, sem eru alls 133.071 talsins á öllu landinu hækkar um 12,7 prósent frá árinu 2017 og verður alls 5.727 milljarðar króna. Á höfuðborgarsvæðinu hækkar matsverð íbúða í sérbýli meira en íbúðir í fjölbýli en á landsbyggðinni er þessu öfugt farið.
Mesta hækkunin á Reykjanesi
Fasteignamat hækkar mest á Reykjanesi en þar hækkar íbúðamatið um 41,1 prósent í Reykjanesbæ, um 37,9 prósent í sameinuðu sveitarfélagi Sandgerðis og Garðs og um 32,9 prósent í Vogum.
Fasteignamat atvinnuhúsnæðis hækkar um 15 prósent á landinu öllu, um 17,2 prósent á höfuðborgarsvæðinu en um 9,9 prósent á landsbyggðinni.
Heildarfasteignamat á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 11,6 prósent, um 28,3 prósent á Suðurnesjum, um 14,3 prósent á Vesturlandi, 12,1 prósent á Vestfjörðum, 11 prósent á Norðurlandi vestra, 15 prósent á Norðurlandi eystra, 9,5 prósent á Austurlandi og um 13,7 prósent á Suðurlandi.
Fasteignamat hækkar mest í Reykjanesbæ eða um 34,2 prósent, um 25,5 prósent í Vogum, um 21,1 prósent í Hveragerði og 20,2 prósent á Akranesi.
Mest hækkun íbúðarhúsnæðis í kringum höfuðborgarsvæðið
Meðalhækkun á mati íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu er 10,3 prósent og hækka flest svæði innan þess um 8-12 prósent. Mun meiri hækkun má sjá í nágrannasveitarfélögum, þannig hækkar matssvæðið á Ásbrú um 98 prósent, Sandgerði um 39 prósent, Garður um 37 prósent, Reykjanes dreifbýli um 35 prósent, Hafnir um 35 prósent, Keflavík og Njarðvík um 34 prósent, Vogar um 33 prósent, Hveragerði um 24 prósent, og Akranes og Selfoss um 22 prósent.
Vægar hækkanir á sumarhúsum
Fasteignamat sumarhúsa fyrir árið 2019 hækkar um 9,8 prósent og byggir það mat á sömu aðferðarfræði og fasteignamatið fyrir árið 2018 gerði.
Fyrir fasteignamatið 2018 kynnti Þjóðskrá Íslands nýja aðferðarfræði við mat á sumarbústöðum sem leiðrétti skekkju sem hafði myndast með eldri aðferðarfræði. Sú breyting var liður í endurskoðun á öllum matsaðferðum Þjóðskrár Íslands og miðaði að því að matið endurspegli betur markaðsverð fasteigna. Heildarhækkun fasteignamats sumarhúsa var 38,7 prósent í fyrra en margar eignir hækkuðu meira. Við matið í ár var áfram unnið út frá nýrri aðferðarfræði en gerðar hafa verið nokkrar endurbætur í samræmi við athugasemdir sem bárust stofnuninni. Til dæmis hafa matssvæði verið endurskoðuð og nú vegur fjarlægð í sundlaug inn í matið og búið er að safna meiri gögnum um legu sumarbústaða sem hefur áhrif til lækkunar á lóðarmat þar sem vegasamgöngur eru í ólagi.
Fasteignamatið byggir á upplýsingum úr þinglýstum kaupsamningum auk fjölmargra annarra þátta sem hafa áhrif á verðmæti fasteigna. Nýja fasteignamatið miðast við verðlag fasteigna í febrúar 2018. Það tekur gildi 31. desember 2018 og gildir fyrir árið 2019. Frestur til að gera athugasemdir við nýtt fasteignamat er til 30. desember 2018.