Verðandi meirihluti fékk færri atkvæði en verðandi minnihluti

Þeir fjórir flokkar sem eru að mynda meirihluta í Reykjavík fengu 700 færri atkvæði en þeir flokkar sem verða að öllum líkindum í minnihluta. Þeir fengu 45,2 prósent allra greiddra atkvæða.

Sveitarstjórnarkosningar 2018
Auglýsing

Þeir fjórir flokkar sem nú ræða myndun nýs meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur fengu sam­tals 27.328 atkvæði í kosn­ing­unum um síð­ustu helgi. Þeir eru Sam­fylk­ing, Við­reisn, Píratar og Vinstri græn.

Verð­andi minni­hluti, sem mun sam­an­standa af Sjálf­stæð­is­flokki, Sós­í­alista­flokki Íslands, Mið­flokki og Flokki fólks­ins fékk hins vegar 28.028.

Alls kusu 60.422 af þeim 90.135 sem voru á kjör­skrá í kosn­ing­un­um. Það þýðir að kjör­sókn var 67 pró­sent. Alls kusu 5.066 því önnur fram­boð en þau sem komust inn, eða skil­uðu auðu. Af þeim átta fram­boðum sem fengu atkvæði en komust ekki inn í borg­ar­stjórn fékk Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn flest atkvæði, eða 1.870 tals­ins. Fæst atkvæði fengu ann­ars vegar Íslenska þjóð­fylk­ingin (125 atkvæði) og hins vegar Frels­is­flokk­ur­inn (142 atkvæð­i).

Auglýsing

Því fóru 5.766 fleiri atkvæði til flokka sem verða lík­lega í minni­hluta, náðu ekki inn eða voru auð en til þess meiri­hluta sem er í mót­un.

Staðan breyt­ist ef Sós­í­alista­flokkur er klof­inn frá

Verð­andi minni­hluti er þó ekki einn sam­stæður hóp­ur, og hefði aldrei getað myndað meiri­hluta saman af tveimur ástæð­um: Sós­í­alista­flokk­ur­inn neitar að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum og Sós­í­alista­flokk­ur­inn ætlar ekki að taka þátt í meiri­hluta­sam­starfi yfir höf­uð.

Ef Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem fékk 3.758 atkvæði, er aðskil­inn frá, og lát­inn standa sér þar sem hann ætlar sér ekki að vinna með neinum flokk­um, þá eru hinir þrír flokk­arnir í vænt­an­legum minni­hluta með 24.270 atkvæði. Í ljósi þess að Við­reisn taldi sig eiga meira sam­eig­in­legt með Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri grænum en Sjálf­stæð­is­flokki, Flokki fólks­ins og Mið­flokki þá þá er sú blokk sem vinnur að myndun meiri­hluta stærri en sú oft­ast var nefnd sem næst lík­leg­asti mögu­leik­inn í stöð­unni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent