Nefnd um endurskoðun laga um Seðlabankann á að ljúka störfum í janúar 2019

Forsætisráðherra ætlar að skipa nefnd um endurskoðun laga um Seðlabanka Íslands sem á að skila af sér á næsta ári. Starf nefndarinnar byggir m.a. á skýrslu um endurskoðun peningastefnu Íslands.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ætlar að skipa nefnd um end­ur­skoðun laga um Seðla­banka Íslands þar sem munu eiga sæti tveir full­trúar for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, tveir full­trúar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og einn full­trúi Seðla­banka Íslands. Nefndin á að ljúka störfum fyrir 31. jan­úar 2019. Þessi áform voru til­kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær­morg­un.

Vinna nefnd­ar­innar mun m.a. byggja á skýrslu nefndar um end­ur­skoðun pen­inga­stefnu Íslands sem skilað var 5. júní síð­ast­lið­inn.

Í þeirri skýrslu er gengið út frá því að íslenska krónan verði áfram gjald­mið­ill lands­ins en meðal ann­ars lagst gegn því að Ísland taki upp mynt­ráð og fast­geng­is­stefnu og sagt að landið eigi ekki að reka pen­inga­stefnu með stuðn­ingi hafta. Þess í stað eru lagðar til alls ell­efu til­lögur sem lúta að breyt­ingum á pen­inga­stefn­unni og starfs­háttum Seðla­banka Íslands.

Auglýsing
Á meðal þeirra eru að verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands á að und­an­skilja hús­næð­is­verð og fjár­mála­stöð­ug­leiki á að hafa for­gang á verð­stöð­ug­leika ef aðstæður koma upp að ógn skap­ist gegn hinum fyrr­nefnda. Þá eiga aðstoð­ar­seðla­banka­stjórar að vera tveir í stað eins og á annar að vera með áherslu á fjár­mála­stöð­ug­leika en hinn með áherslu á hefð­bundna pen­inga­stefnu. Auka þarf ábyrgð Seðla­bank­ans þannig að hann beri einn ábyrgð á þjóð­hags­varúð og enda­varúð í stað þess að ábyrgð­inni sé skipt milli Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits, eins og nú er.

Í nefnd­inni, sem skipuð var í mars í fyrra og skil­aði skýrslu sinni í dag, sátu hag­fræð­ing­arnir Ásgeir Jóns­son, sem var for­maður henn­ar, Ásdís Krist­jáns­dóttir og Ill­ugi Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hægt er að lesa frétta­skýr­ingu Kjarn­ans um skýrslu nefnd­ar­innar hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent