Íslandsstofa ekki undanþegin upplýsingalögum

Meirihluti utanríkismálanefndar vill að upplýsingalögin gildi áfram um starfsemi Íslandsstofu. Í frumvarpi utanríkisráðherra átti starfsemin að vera undanþegin ákvæðum upplýsinga- og samkeppnislaga og laga um opinber innkaup.

Lára Inspired by Iceland Íslandsstofa
Auglýsing

Meiri­hluti utan­rík­is­mála­nefndar hefur skilað breyt­ing­ar­til­lögu á frum­varpi um Íslands­stofu þar sem upp­lýs­inga­lögin munu áfram gilda um starf­semi henn­ar. Í frum­varpi utan­rík­is­ráð­herra átti starf­semi Íslands­stofu að vera und­an­þegin ákvæðum upp­lýs­inga­laga, sam­keppn­islaga og laga um opin­ber inn­kaup sem meiri­hlut­inn vill að gildi áfram um Íslands­stofu. ­Upp­lýs­inga­lögin veiti þó ekki aðgang að upp­lýs­ingum sem varða mál­efni starfs­manna hennar eða fjár­hags- eða við­skipta­hags­muni þeirra einka­að­ila sem taka þátt í verk­efnum hennar sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lög­unni.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra lagði fram stjórn­ar­frum­varp um breyt­ingu á lögum um Íslands­stofu þar sem meðal ann­ars rekstr­ar­formi og hlut­verki hennar er breytt. Íslands­stofa verður þannig sjálfs­eign­ar­stofnun og mun það að sögn utan­rík­is­ráð­herra eyða óvissu um stjórn­sýslu­lega stöðu stofn­un­ar­inn­ar.

Vill meiri­hluti utan­rík­is­mála­nefndar að upp­lýs­inga­lögin gildi áfram um Íslands­stofu en sam­kvæmt frum­varp­inu átti hún að vera und­an­þegin upp­lýs­inga­lög­um. Utan­rík­is­ráð­herra sagði í fram­sögu sinni á Alþingi þegar hann mælti fyrir frum­varp­inu að með því yrði Íslands­stofa ekki lengur stofnun og stjórn­sýslu­að­ili, heldur rekin á einka­rétt­ar­legum grunni, og því gætu stjórn­sýslu­lög og upp­lýs­inga­lög ekki gilt um sjálfs­eign­ar­stofn­un­ina Íslands­stofu. Gild­is­svið þess­ara laga sé bundið við opin­bera aðila og stjórn­sýslu þeirra og hið sama eigi við um gild­is­svið starfs­manna­laga sem lagt var til að nái ekki heldur til starfs­manna Íslands­stofu.

Auglýsing

Í frum­varp­inu er sem sagt lagt til að Íslands­stofa sé und­an­þegin tekju­skatti sam­kvæmt lögum um tekju­skatt og að ákvæði stjórn­sýslu­laga, upp­lýs­inga­laga, sam­keppn­islaga og laga um opin­ber inn­kaup eigi ekki við um starf­semi henn­ar.

Með breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hlut­ans verður Íslands­stofa hins vegar áfram und­an­þegin tekju­skatti eins og lagt er til í frum­varpi utan­rík­is­ráð­herra og munu ákvæði stjórn­sýslu­laga ekki gilda um starf­semi henn­ar. Þannig vill meiri­hluti utan­rík­is­mála­nefndar að ákvæði bæði sam­keppn­islaga og laga um opin­ber inn­kaup eigi áfram við um Íslands­stofu. Þá er lagt til í breyt­ing­ar­til­lög­unni að tekið sé sér­stak­lega fram að upp­lýs­inga­lögin gildi um starf­semi Íslands­stofu. Þau veiti þó ekki aðgang að upp­lýs­ingum í fórum Íslands­stofu sem varða mál­efni starfs­manna hennar eða fjár­hags- eða við­skipta­hags­muni þeirra einka­að­ila sem taka þátt í verk­efnum henn­ar.

Nefnd­ar­á­lit meiri­hlut­ans, og þannig efn­is­legur rök­stuðn­ingur fyrir þessum breyt­ing­um, hefur ekki enn verið birtur á vef Alþing­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent