Rannsaka hvort um mansal hafi verið að ræða

Nargiza Salimova bíður nú eftir svari frá kærunefnd útlendingamála hvort fallast eigi á beiðni hennar um endurupptöku í máli hennar. Hún fór í skýrslutöku í gær en hugsanlega er Nargiza fórnarlamb mansals. Til stendur að vísa henni úr landi í nótt.

Nargizu Salimova
Nargizu Salimova
Auglýsing

Lög­fræð­ingar Nar­g­izu Salimova skil­uðu inn grein­ar­gerð til kæru­nefndar útlend­inga­mála varð­andi mál hennar fyrir hádegi í morgun en til stendur að vísa henni úr landi næstu nótt. Hún fór í skýrslu­töku til lög­reglu í gær þar sem grunur leikur á að hún sé fórn­ar­lamb mansals. Von­ast er til að kæru­nefnd skili svari fyrir kl. 19 í kvöld. Búist er við því að lög­reglan sæki hana nokkrum klukku­tímum fyrir brott­vís­un. 

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um mál Nar­g­izu fyrir helgi en hún kom til lands­ins fyrir rúmum átta mán­uðum síðan eftir að hafa ferð­ast langa leið frá heima­land­inu Kirgist­an. Þjóð­erni hennar er Uygur og til­heyrir hún því minni­hluta­hópi þar. Eftir að eig­in­maður hennar hvarf spor­laust fyrir um ári síðan flúði hún frá Kirgistan og end­aði á Íslandi.

Hún kom til Íslands með aðstoð smygl­ara og án vit­neskju um hvert hún væri að fara. Hún sótti um hæli á Íslandi þann 20. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og hófst þar með ferli hennar í kerf­inu sem mun taka enda þriðju­dag­inn 12. júní ef ekk­ert verður að gert. Þá verður henni vísað úr landi til Lit­háen eftir að láð­ist að kæra mál hennar til kæru­nefndar útlend­inga­mála á til­teknum tíma vegna anna hjá lög­fræð­ingi sem henni var úthlutað hjá Rauða kross­in­um. Hún gerði sér ekki grein fyrir að um mis­tök hefði verið að ræða fyrr en eftir að íslenskir vinir hennar fóru að grennsl­ast fyrir um mál­ið.

Auglýsing

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er í fyrsta lagi óskað eftir því við kæru­nefnd að taka kæruna upp að nýju vegna galla á með­ferð máls henn­ar, bæði hvað varðar tals­mann hennar hjá Rauða kross­inum en einnig af hálfu stjórn­valda. Talið er að N­ar­g­izu hafi ekki verið leið­beint nægi­lega vel eftir að kæru var vísað frá. 

Í öðru lagi þykir ástæða til að kanna hvort hún hafi verið fórn­ar­lamb mansals en hún kom til lands­ins með aðstoð smygl­ara, eins og áður hefur verið greint frá. Í lögum um útlend­inga segir að heim­ilt sé að veita útlend­ingi sem grunur leikur á að sé fórn­ar­lamb mansals dval­ar­leyfi í allt að níu mán­uði þótt öðrum skil­yrðum sé ekki full­nægt. Við rann­sókn máls­ins skuli lög­regla veita Útlend­inga­stofnun aðstoð, til dæmis við mat á aðstæðum við­kom­andi. Þrátt fyrir önnur ákvæði skuli ekki vísa við­kom­andi ein­stak­lingi úr landi á þessu tíma­bil­i. 

Í þriðja lagi er talið að Nar­g­iza sé sér­stak­lega við­kvæm vegna heilsu en sál­fræði­mat liggur nú fyrir vegna and­legrar heilsu. Sam­kvæmt gögnum í mál­inu hefur þessi reynsla reynt gríð­ar­lega á Nar­g­izu og þarf hún nauð­syn­lega á sál­fræði­hjálp að halda. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent