Segir Múlaþing ekki vera að útiloka flóttafólk frá öðrum ríkjum en Úkraínu

Múlaþing ætlar að leggja „sérstaka áherslu“ á móttöku flóttafólks frá Úkraínu í samningi sem sveitarfélagið gerir við stjórnvöld um samræmda móttöku flóttafólks. Sveitarstjóri segir sveitarfélagið ekki vera að útiloka flóttafólk frá öðrum ríkjum.

Sveitarstjóri Múlaþings segir áherslu um að taka fyrst og fremst á móti flóttafólki frá Úkraínu komna frá eigendum Eiða sem boðið hafa húsnæðið fyrir móttöku flóttafólks.
Sveitarstjóri Múlaþings segir áherslu um að taka fyrst og fremst á móti flóttafólki frá Úkraínu komna frá eigendum Eiða sem boðið hafa húsnæðið fyrir móttöku flóttafólks.
Auglýsing

Sveit­ar­stjórn Múla­þings sam­þykkti í vik­unni fyr­ir­liggj­andi drög að samn­ingi um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks. Í til­lög­unni sem sam­þykkt var segir að sveit­ar­fé­lagið leggi „sér­staka áherslu á mót­töku flótta­fólks frá Úkra­ín­u“.

„Það þýðir bara nákvæm­lega þetta,“ segir Björn Ingi­mars­son, sveit­ar­stjóri Múla­þings, í sam­tali við Kjarn­ann. Aðspurður hvort þetta þýði að Múla­þing muni úti­loka flótta­fólk frá öðrum ríkjum segir Björn að svo sé ekki, en að það verði megin áhersla sveit­ar­fé­lags­ins að taka á móti flótta­fólki frá Úkra­ínu.

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið vinnur nú að und­ir­ritun samn­inga við sveit­ar­fé­lög um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks sem gildir til árs­loka 2023. Samn­ing­ur­inn felur í sér fjár­stuðn­ing frá rík­inu svo sveit­ar­fé­lög geti veitt þeim fjölda flótta­fólks sem það er til­búið til að taka á móti full­nægj­andi þjón­ustu yfir gild­is­tíma samn­ings­ins.

Auglýsing

Mark­mið samn­ing­ins er að sam­ræma mót­töku flótta­fólks þannig að ríkis og sveit­ar­fé­lög tryggi flótta­fólki sam­fellda og jafna þjón­ustu óháð því hvaðan það kem­ur. Ekk­ert kemur fram í þjón­ustu­samn­ingnum að sveit­ar­fé­lög geti sett ákveðna fyr­ir­vara um mót­töku, til að mynda frá hvaða löndum flótta­fólkið kem­ur.

Áhersla frá upp­hafi á flótta­fólk frá Úkra­ínu

Björn Ingimarsson, sveitarstjóri Múlaþings. Mynd: Aðsend

Björn segir áhersl­una fyrst og fremst koma frá eig­endum Eiða sem buðu hús­næði gamla Alþýðu­skól­ans á Eiðum fram undir fólk á flótta eftir inn­rás Rússa í Úkra­ínu. Í dag eru um 30 flótta­menn búsettir á Eið­um.

„Þetta hefur verið áhersla frá upp­hafi. Við gerum okkur hins vegar alveg grein fyrir því að samn­ing­ur­inn snýst um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks en þetta er okkar megin áhersla. Sveit­ar­fé­lagið hafði í raun­inni ekki yfir­ráð á hús­næði til að geta brugð­ist við þessu fyrr en eig­endur Eiða höfðu frum­kvæði að þessu,“ segir Björn.

Full­trúi Mið­flokks­ins sam­þykkti með þeim fyr­ir­vara að verið væri að tryggja mót­töku fólks frá Úkra­ínu

Þröstur Jóns­son, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, lagði fram bókun á fundi sveit­ar­stjórnar í vik­unni þar sem hann seg­ist sam­þykkja samn­ings­drögin þar sem það sé hans skiln­ingur að samn­ing­ur­inn sé ein­göngu til að tryggja fram­gang mót­töku flótta­fólks frá Úkra­ínu. „Að þeim skiln­ingi gefnum sam­þykki ég fyr­ir­liggj­andi samn­ings­drög,“ segir í bókun Þrast­ar.

Björn seg­ist ekki geta tjáð sig frekar um bókun Þrast­ar. „Þetta er í raun­inni bara hans skiln­ing­ur.“

Samn­ing­ur­inn fer nú til ráðu­neyt­is­ins þar sem mun koma í ljós hvort til­lit verður tekið til áherslu sveit­ar­fé­lags­ins um að leggja áherslu á mót­töku flótta­fólks frá Úkra­ínu. „Það verður bara að koma í ljós hvernig þessi mál þró­ast. Það verður alltaf sam­tal okkar og ráðu­neyt­is,“ segir Björn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent