Engar breytingar hafa verið gerðar né heldur boðaðar á nýrri reglugerð um útlendinga sem dómsmálaráðherra setti í mars og þrengir að mati Rauða krossins á túlkun á því hvenær sérstakar ástæður eigi við í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd og hvenær beri að taka mál sérstaklega viðkvæmra einstaklinga til efnislegrar meðferðar. Forsætisráðherra hitti dómsmálaráðherra á fundi, en ekki fæst uppgefið hvort málið var sérstaklega rætt þar.
Kjarninn greindi frá því í mars að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefði óskað eftir samtali við Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra vegna málsins og vildi fara nákvæmlega yfir gagnrýni Rauða krossins og hvernig rétt sé að bregðast við því. Hún ítrekaði í svari sínu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi sérstaklega að í kjarna útlendingalaganna eigi mannúð að vera leiðarljós í móttöku flóttafólks og ekki síst barna. Katrín sagði einnig að henni hafi verið ókunnugt um efni reglugerðarinnar þegar hún var kynnt.
Ekki fást upplýsingar frá ráðuneytinu hvort málið var rætt eða hvort fundurinn yfir höfuð snerist um þetta mál, en sjá má á heimasíðu forsætisráðuneytisins þar sem finna má upplýsingar um dagskrá ráðherra, að fundur milli Katrínar og Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra fór fram fimmtudaginn 5. apríl og stóð í klukkutíma.
Rauði krossinn gerði alvarlegar athugasemdir við þröng skilyrði reglugerðarinnar sem gerðar voru fyrir því að taka megi umsókn til efnismeðferðar vegna heilsufarsástæðna. Hingað til hafi verið lagt einstaklingsbundið mat á heilsu umsækjenda og hvaða áhrif endursending hefur á heilsu þeirra, óháð því hvort heilbrigðiskerfi í viðtökuríki er í stakk búið til að veita viðkomandi fullnægjandi meðferð. Reglugerðin taki hins vegar fram í dæmaskyni að þeir einstaklingar sem geti fallið þarna undir séu umsækjendur sem glíma við mikil og alvarleg veikindi, gerð er krafa um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og að meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.
„Í kafla reglugerðarinnar sem fjallar um sérviðmið er varðar börn og ungmenni er tekið fram að þau viðmið sem komi fram í reglugerðinni (1. og 3-7. mgr.) eigi jafnframt við um börn. Þannig virðist gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúkdómi sem ekki nær þeim alvarleikaþröskuldi að teljast skyndilegur og lífshættulegur skuli endursend til viðtökuríkis, jafnvel þó að foreldrar barnsins muni þurfa að greiða fyrir meðferð við sjúkdómnum í viðtökuríki, án þess að frekara mat fari fram á einstaklingsbundnum aðstæðum barnsins,“ segir í frétt Rauða krossins um málið frá því í mars.
Rauði krossinn telur að efni nýrrar reglugerðar gangi að miklu leyti gegn almennri túlkun og skýringu á lögum um útlendinga, markmiðum þeirra og athugasemdum í greinargerð með frumvarpi sem varð að núgildandi lögum um útlendinga. Þá feli ákvæði reglugerðarinnar í sér afturför og skerðingu á réttindum umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Samkvæmt heimildum Kjarnans er enn sem komið er komin lítil reynsla á framkvæmd samkvæmt reglugerðinni. Vísað hafi verið til hennar í ákvörðunum og úrskurðum, en óvíst er enn hvort hún hafi haft úrslitaáhrif og enn eigi þau mál eftir að rata til kærunefndar útlendingamála. Rauði krossinn bíður þess að sjá með hvaða hætti hún notast við hina nýju heimild í reglugerðinni.