Halla Tómasdóttir, rekstrarhagfræðingur og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, tekur við starfi forstjóra B Team þann 1. ágúst næstkomandi. Frá þessu greinir hún á facebook-síðu sinni í dag.
Á vefsíðu B Team segir að samtökin hafi verið stofnuð af alþjóðlegum hópi leiðtoga fyrirtækja til að hvetja til betri leiða til að stunda viðskipti, með velferð fólks og plánetuna í huga. Halla greinir frá því í stöðuuppfærslu sinni að The B Team hafi verið stofnað fyrir fimm árum af þeim Richard Branson, stofnanda Virgin Group, og Jochen Zeitz, fyrrverandi forstjóra Puma.
„Þeir, ásamt öðrum hugrökkum leiðtogum sem ég ber mikla virðingu fyrir, hafa einsett sér að leiða þá umbreytingu sem þarf að verða á viðskipta- og stjórnarháttum á heimsvísu. Þeir eru að endurskilgreina hlutverk fyrirtækja, sem vissulega þurfa að skila hagnaði til að vera sjálfbær, en verða einnig að beita afli sínu í þágu umhverfis og samfélags. Efst á dagskrá eru loftslagsmálin, en B Team leggur líka áherslu á að auka fjölbreytni í forystu, á gagnsæi og uppbyggingu trausts og á sköpun manneskjulegra vinnustaða og samfélags,“ skrifar Halla.
Hún segir jafnframt það vera mikinn heiður að vera treyst fyrir forystuhlutverki fyrir svo mikilvæg verkefni og að hún hlakki virkilega til að starfa með þessum leiðtogum og frábærum hópi starfsmanna að málum sem hún brennur svo einlæglega fyrir. „Í hnotskurn snýst þetta allt saman um þá tegund forystu sem við verðum að sjá, jafnt í einkageiranum sem og annarsstaðar. Ég hlakka virkilega til að ljá hug minn, hjarta og hendur í þágu slíkrar forystu og trúi því að þarna geti ég gert gagn og látið gott af mér leiða.“
Halla mun flytja til Bandaríkjanna í sumar ásamt fjölskyldu sinni en höfuðstöðvar B Team eru í New York. B Team er einnig með skrifstofur í London og leiðtoga, starfsmenn og samstarfsaðila er að finna um allan heim, segir hún.
Með sól í sinni og gleði í hjarta langar mig að segja ykkur að þann 1. ágúst nk. tek ég við draumastarfinu, sem...
Posted by Halla Tomasdottir on Thursday, June 14, 2018