Halla verður nýr forstjóri B Team

Halla Tómasdóttir tekur við starfi forstjóra B Team þann 1. ágúst næstkomandi.

Halla Tómasdóttir.
Halla Tómasdóttir.
Auglýsing

Halla Tóm­as­dótt­ir, rekstr­ar­hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, tekur við starfi for­stjóra B Team þann 1. ágúst næst­kom­andi. Frá þessu greinir hún á face­book-­síðu sinni í dag. 

Á vef­síðu B Team segir að sam­tökin hafi verið stofnuð af alþjóð­legum hópi leið­toga fyr­ir­tækja til að hvetja til betri leiða til að stunda við­skipti, með vel­ferð fólks og plánet­una í huga. Halla greinir frá því í stöðu­upp­færslu sinni að The B Team hafi verið stofnað fyrir fimm árum af þeim Ric­hard Bran­son, stofn­anda Virgin Group, og Jochen Zeitz, fyrr­ver­andi for­stjóra Puma.

„Þeir, ásamt öðrum hug­rökkum leið­togum sem ég ber mikla virð­ingu fyr­ir, hafa ein­sett sér að leiða þá umbreyt­ingu sem þarf að verða á við­skipta- og stjórn­ar­háttum á heims­vísu. Þeir eru að end­ur­skil­greina hlut­verk fyr­ir­tækja, sem vissu­lega þurfa að skila hagn­aði til að vera sjálf­bær, en verða einnig að beita afli sínu í þágu umhverfis og sam­fé­lags. Efst á dag­skrá eru lofts­lags­mál­in, en B Team leggur líka áherslu á að auka fjöl­breytni í for­ystu, á gagn­sæi og upp­bygg­ingu trausts og á sköpun mann­eskju­legra vinnu­staða og sam­fé­lags,“ skrifar Halla.

Auglýsing

Hún segir jafn­framt það vera mik­inn heiður að vera treyst fyrir for­ystu­hlut­verki fyrir svo mik­il­væg verk­efni og að hún hlakki virki­lega til að starfa með þessum leið­togum og frá­bærum hópi starfs­manna að málum sem hún brennur svo ein­læg­lega fyr­ir. „Í hnot­skurn snýst þetta allt saman um þá teg­und for­ystu sem við verðum að sjá, jafnt í einka­geir­anum sem og ann­ars­stað­ar. Ég hlakka virki­lega til að ljá hug minn, hjarta og hendur í þágu slíkrar for­ystu og trúi því að þarna geti ég gert gagn og látið gott af mér leiða.“

Halla mun flytja til Banda­ríkj­anna í sumar ásamt fjöl­skyldu sinni en höf­uð­stöðvar B Team eru í New York. B Team er einnig með skrif­stofur í London og leið­toga, starfs­menn og sam­starfs­að­ila er að finna um allan heim, segir hún. 

Með sól í sinni og gleði í hjarta langar mig að segja ykkur að þann 1. ágúst nk. tek ég við drauma­starf­inu, sem...

Posted by Halla Tom­as­dottir on Thurs­day, June 14, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent