Veitingastaðurinn Hjá Höllu í Grindavík var með hagstæðasta tilboðið í útboði fyrir útleigu á aðstöðu undir veitingaþjónustu á annarri hæð í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.
Útboðið hófst í mars síðastliðnum en skömmu áður var haldinn fundur þar sem framkvæmd útboðsins var kynnt. Samkvæmt tilkynningunni var óskað eftir áhugasömum aðilum með reynslu af veitingarekstri til þátttöku í valferlinu. „Byggt var á markaðsrannsóknum meðal tengifarþega sem sýndu að þeir kjósi þekkta matvöru sem sé tilbúin á skömmum tíma, þá helst pítsur og fersk salöt.“
Tólf fyrirtæki sóttu útboðsgögn eftir að opnað var fyrir aðgang að þeim 28. mars síðastliðinn. Fjögur þeirra sendu inn upplýsingar um hæfi, þrjú tilboð uppfylltu hæfiskröfur og var þeim sem stóðu að tilboðunum þremur boðið til viðræðna. Segir enn fremur í tilkynningunni að í valferlinu hafi verið notast við samkeppnisviðræður og að lokum samið við þann aðila sem skilaði inn hagstæðasta tilboðinu. Matsnefnd hafi farið yfir tilboðin og var hún skipuð tveimur fulltrúum frá Isavia og tveimur utanaðkomandi aðilum frá Deloitte.
„Gerður verður fjögurra ára samningur við Hjá Höllu um útleigu á aðstöðunni og rekstur veitingaþjónustu í suðurbyggingu flugstöðvarinnar. Mun staðurinn bjóða upp á pítsur, salöt og einn heitan rétt að auki. Stefnt er að því að staðurinn verði opnaður síðar í sumar,“ segir í tilkynningunni.