Hjá Höllu mun verða með veitingaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Veitingastaðurinn Hjá Höllu var með hagstæðasta tilboðið í útboði fyrir útleigu á aðstöðu undir veitingaþjónustu á 2. hæð í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.

Hjá Höllu
Hjá Höllu
Auglýsing

Veit­inga­stað­ur­inn Hjá Höllu í Grinda­vík var með hag­stæð­asta til­boðið í útboði fyrir útleigu á aðstöðu undir veit­inga­þjón­ustu á annarri hæð í suð­ur­bygg­ingu Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar á Kefla­vík­ur­flug­velli. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Isa­via.

Útboðið hófst í mars síð­ast­liðnum en skömmu áður var hald­inn fundur þar sem fram­kvæmd útboðs­ins var kynnt. Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni var óskað eftir áhuga­sömum aðilum með reynslu af veit­inga­rekstri til þátt­töku í val­ferl­inu. „Byggt var á mark­aðs­rann­sóknum meðal tengifar­þega sem sýndu að þeir kjósi þekkta mat­vöru sem sé til­búin á skömmum tíma, þá helst pít­sur og fersk salöt.“

Auglýsing

Tólf fyr­ir­tæki sóttu útboðs­gögn eftir að opnað var fyrir aðgang að þeim 28. mars síð­ast­lið­inn. Fjögur þeirra sendu inn upp­lýs­ingar um hæfi, þrjú til­boð upp­fylltu hæfis­kröfur og var þeim sem stóðu að til­boð­unum þremur boðið til við­ræðna. Segir enn fremur í til­kynn­ing­unni að í val­ferl­inu hafi verið not­ast við sam­keppn­is­við­ræður og að lokum samið við þann aðila sem skil­aði inn hag­stæð­asta til­boð­inu. Mats­nefnd hafi farið yfir til­boðin og var hún skipuð tveimur full­trúum frá Isa­via og tveimur utan­að­kom­andi aðilum frá Deloitte.

„Gerður verður fjög­urra ára samn­ingur við Hjá Höllu um útleigu á aðstöð­unni og rekstur veit­inga­þjón­ustu í suð­ur­bygg­ingu flug­stöðv­ar­inn­ar. Mun stað­ur­inn bjóða upp á pít­s­ur, salöt og einn heitan rétt að auki. Stefnt er að því að stað­ur­inn verði opn­aður síðar í sum­ar,“ segir í til­kynn­ing­unn­i.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent