Sýna minni tryggð við stjórnmálaflokka

Á síðustu þremur áratugum hefur hlutfall tryggra kjósenda stjórnmálaflokka lækkað töluvert, samkvæmt nýbirtri fræðigrein Evu H. Önnudóttur og Ólafs Þ. Harðarsonar.

Auglýsing
Eva Heiða Önnudóttir, doktor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
Eva Heiða Önnudóttir, doktor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands

Tryggð íslenskra kjós­enda við stjórn­mála­flokka hefur farið minnk­andi á síð­ustu þremur ára­tug­um, þrátt fyrir að hug­mynda­fræði­leg gjá milli borgar og lands­byggðar standi óbreytt. Þetta eru nið­ur­stöður nýrrar fræði­greinar stjórn­mála­fræð­ing­anna Evu Heiðu Önnu­dóttur og Ólafs Þ. Harð­ar­sonar við Háskóla Íslands.

Í grein­inni, sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Stjórn­mála og Stjórn­sýslu á dög­un­um, er farið yfir kosn­inga­hegðun Íslend­inga eftir nið­ur­stöðum úr Íslensku kosn­inga­rann­sókn­inni frá árunum 1983 til 2017. Rann­sóknin var fram­kvæmd í kjöl­far hverra Alþing­is­kosn­inga sem fóru fram á þessu tíma­bili, en þær voru alls tíu.

Hnignun Fjór­flokks breytti litlu

Nið­ur­stöður Evu og Ólafs bentu til þess að fylg­is­minnkun Fjór­flokks­ins og ris fjölda nýrra stjórn­mála­flokka hafi haft lítil kerf­is­læg áhrif á hegðun íslenskra kjós­enda. Hug­mynda­fræði­leg gjá milli borgar og sveitar hefur nokkurn veg­inn hald­ist óbreytt á tíma­bil­inu, enn sé jafn­stór munur á kosn­inga­hegðun kjós­enda í dreif­býli og þétt­býli og fyrir þremur ára­tugum síð­an. Gjáin í stefnu­málum milli hægri- og vinstri­flokka er sömu­leiðis jafn­stór nú og árið 1983, en hún minnk­aði tíma­bundið á árunum 2003 til 2013.

Auglýsing

Helsta breyt­ingin sem hefur átt sér stað í kosn­inga­hegðun Íslend­inga er hins vegar auk­inn sveigj­an­leiki kjós­enda. Atkvæði fara í minni mæli eftir þjóð­fé­lags­stöðu kjós­enda, auk þess sem ekki skiptir jafn­miklu máli nú og áður að kjós­andi velji flokk sem er hug­mynda­fræði­lega nálægt honum á hægri-vinstri ásn­um. Sam­hliða því hefur tryggum kjós­endum stjórn­mála­flokka einnig farið fækk­andi á þremur ára­tug­um.

Til útskýr­ingar á nið­ur­stöðum sínum nefna Eva og Ólafur tvær hugs­an­legar afleið­ingar hvers vegna fylgi sé ekki jafn­bundið ákveðnum stjórn­mála­flokk­um-og stefnum og áður. Ann­ars vegar gæti mik­ill fjöldi nýrra flokka valdið því að kjós­endur séu ekki jafn­upp­lýstir um hvar þeir liggja á hægri-vinstri ás stjórn­mál­anna og kjósi því oftar flokka sem sam­rým­ast þeirra stjórn­mála­skoð­unum ekki jafn­vel. Hins vegar er einnig mögu­leiki á að Íslend­ingar kjósi í auknum mæli af ástæðum sem séu ótengdar hægri-vinstri ás stjórn­mála­flokk­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent