Athugasemdir í kæru Pírata leiða ekki til ógildingar kosninga

Nefnd á vegum sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu hefur komist að þeirri niðurstöðu að athugasemdir af hálfu Pírata vegna sveitarstjórnarkosninganna, sem gerðar voru í kæru til nefndarinnar, séu ekki slíkar að þær leiði til ógildingar kosninganna.

7DM_9630_raw_1779.JPG
Auglýsing

Nefnd á vegum sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að athuga­semdir af hálfu umboðs­manna Pírata vegna sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna, sem gerðar voru í kæru til nefnd­ar­inn­ar, séu ekki slíkar að þær leiði til ógild­ingar kosn­ing­anna.

[link]­Meðal þess sem kvartað var yfir var úthlutun á lista­bók­staf til fram­boðs­lista vegna kosn­ing­anna en Frels­is­flokk­ur­inn fékk bók­stafnum Þ úthlutað sem Pírötum fannst of líkt P-inu sem þeir nota. Slíkt gæti valdið rugl­ingi meðal kjós­enda. Nefndin kemst að þeirri nið­ur­stöðu að hvergi sé kveðið á um það í íslenskri kosn­inga­lög­gjöf að yfir­kjör­stjórn beri að líta til inn­byrðis rugl­ings­hættu á stöfum íslenska staf­rófs­ins. Engin mál­efna­leg rök sett fram í erindi kærenda vegna þess­ara athuga­semda og er það mat kjör­nefndar að ekki hafi verið neitt athuga­vert við fram­kvæmd og úthlutun bók­staf­anna.

Píratar gerðu einnig meðal ann­ars athuga­semdir við kjör­kass­ana, hvernig með­ferð þeirra var háttað og hvernig þeir voru útlít­andi og sam­an­sett­ir. til dæmis að númer kass­anna hafi verið ritað með blý­anti með lím­miða, þeir skrúf­aðir saman á hlið­un­um, einn kassi hafi brotnað sem sýni hversu úr sér gengnir kass­arnir séu og fleira. Nefndin segir hins vegar að kass­anir séu í sam­ræmi við þær kröfur sem gerðar eru í lögum um frá­gang þeirra og ástand.

Auglýsing

Píratar lögðu fram sam­bæri­lega kæru fyrir kosn­ingar en henni vís­aði sýslu­maður frá vegna þess að ekki er hægt að kæra kosn­ingar fyrr en þær eru afstaðn­ar. Í sam­tali við mbl.is stuttu eftir kosn­ingar þegar kæran var lög aftur fram sagði Dóra Björt Guð­jóns­dóttir odd­viti Píra­ata í Reykja­vík að þeim hafi fund­ist bók­stafirnir mjög rugl­andi fyrir kjós­end­ur. Hún sagði að mark­miðið sé ekki að láta ógilda kosn­ing­arn­ar, heldur vekja athygli á ólíð­andi vinnu­brögðum við fram­kvæmd kosn­inga.

Lestu úrskurð nefnd­ar­innar hér

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent