Bæjarstjóri leggur til að lækka laun kjörinna fulltrúa í Kópavogi

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, lagði til við bæjarstjórnina að laun kjörinna fulltrúa, þar með talið bæjarstjóra Kópavogs, yrðu lækkuð um 15 prósent.

Kópavogur
Kópavogur
Auglýsing

Ármann Kr. Ólafs­son bæj­ar­stjóri Kópa­vogs­bæjar lagði til við bæj­ar­stjórn í gær að laun kjör­inna full­trúa, þar með talið bæj­ar­stjóra Kópa­vogs, yrðu lækkuð um 15 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bæj­ar­stjór­an­um. ­Til­lög­unni var vísað til for­sætis­nefndar með öllum greiddum atkvæð­um.

Ármann Kr. Ólafsson Mynd: Kópavogsbær„Launa­þróun kjör­inna full­trúa hefur sætt gagn­rýni und­an­farnar vikur og mán­uði eða allt frá úrskurði kjara­ráðs í lok árs 2016. Ég tel rétt að bregð­ast við þeirri gagn­rýni með launa­lækkun og lagði til við bæj­ar­stjórn Kópa­vogs að laun kjör­inna full­trúa, þar með talið bæj­ar­stjóra Kópa­vogs, yrðu lækkuð um 15%,“ segir hann. 

Til­lagan hljómar á þá leið að bæj­ar­stjórn Kópa­vogs sam­þykki að lækka laun kjör­inna full­trúa og laun bæj­ar­stjóra um 15% við upp­haf nýs kjör­tíma­bils. 

Auglýsing

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að í kjöl­far úrskurðar kjara­ráðs um kjör þing­manna hafi bæj­ar­stjórn Kópa­vogs sam­þykkt á nýliðnu kjör­tíma­bili að hækka laun kjör­inna full­trúa og bæj­ar­stjóra hjá Kópa­vogs­bæ. 

„Hækk­unin tók þó ekki mið af úrskurði kjara­ráðs heldur var hækk­unin lægri en þar var kveðið á um og tók þess í stað mið af þróun launa­vísi­tölu á vinnu­mark­aði. Engu að síður hefur komið fram gagn­rýni á launa­þróun þess­ara aðila sem og kjör ann­arra kjör­inna full­trúa í land­inu m.a. af hálfu for­ystu­fólks á vinnu­mark­aði. Því er lagt til að launin lækki í upp­hafi kjör­tíma­bils um 15% frá því sem þau eru nú," segir í grein­ar­gerð­inn­i. 

Mar­grét Frið­riks­dóttir lagði til að til­lögu Ármanns Kr. Ólafs­sonar verði vísað til úrvinnslu for­sætis­nefnd­ar. Var það sam­þykkt með 11 atkvæð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent