133,8 milljarðar komu inn undir bindiskyldu

Heildarvirði allra erlendra fjárfestinga á Íslandi nam 133,8 milljörðum, en meirihluti þeirra var frá bandarískum aðilum og vogunarsjóðum.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra við kynningu á losun gjaldeyrishaftanna í fyrra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra við kynningu á losun gjaldeyrishaftanna í fyrra.
Auglýsing

Inn­streymi erlends fjár­magns nam 133,8 millj­örðum í fyrra, þaðan af voru 83,9 þeirra frá Banda­ríkj­un­um. Stærsti hluti inn­flæð­is­ins fór í skráð hluta­bréf eða aðrar fjár­fest­ing­ar, en erlendir fjár­festar hafa beint sjónum sínum þangað í auknum mæli eftir að sér­stök bindi­skylda var sett á inn­flæði fjár­magns árið 2016. Þetta kemur fram í nýbirtu svari  fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar á vef Alþing­is.

Fyr­ir­spurn Þor­steins beind­ist að magni og sam­setn­ingu inn­streymis á erlendu áhættu­fjár­magni til Íslands á síð­ustu tveimur árum. Sam­kvæmt svari fjár­mála­ráð­herra námu erlendar fjár­fest­ingar 95,4 millj­örðum króna árið 2016 og 133,8 millj­örðum króna í fyrra. 

Vog­un­ar­sjóðir í Arion fyr­ir­ferða­mestir

Bindi­skyld­an, sem inn­leidd var um mitt ár 2016 og heim­ilar Seðla­bank­anum að binda allt að 75% erlendra nýfjár­fest­inga, virð­ist hafa haft ager­andi áhrif á fjár­magns­hreyf­ingar til Íslands. Þannig hafi engar erlendar fjár­fest­ingar komið til lands­ins á seinni hluta árs­ins 2016 og þrír fjórðu hlutar inn­streym­is­ins árið 2017 eru til­komnir vegna kaupa vog­un­ar­sjóða á hlut í Arion banka. 

63% frá Banda­ríkj­unum

Fjár­magn­inu var skipt ójafnt milli landa, en alls festu erlendir fjár­festar frá 36 löndum pen­inga sína á Íslandi í fyrra og þar af komu 63% þeirra frá Banda­ríkj­un­um. Næst stærsti hóp­ur­inn var svo frá Lúx­em­borg, en þaðan komu 18% allra erlendra fjárfestinga.

Auglýsing

Einnig breytt­ist sam­setn­ing erlends gjald­eyris nokkuð milli ára, en eftir að bindi­skyldan var inn­leidd jókst erlend fjár­fest­ing á skráðum hluta­bréfum hér­lendis til muna á meðan að fjár­fest­ing í íslenskum rík­is­skulda­bréfum féll um helm­ing. Bindi­skyldan virð­ist því fyrst og fremst hamla fjár­fest­unum að stunda vaxta­muna­við­skipti með skulda­bréf, en ann­ars­konar fjár­fest­ingar eru enn arð­bærar í augum þeirra. 

Þó er bætt við í svari fjár­mála­ráð­herra að óvíst sé hversu mik­inn hluta inn­streym­is­ins í skráð hluta­bréf megi rekja til bindi­skyld­unnar þar fjár­fest­ingar í íslenskum hluta­bréfum eru nú álit­legri vegna bættra efna­hags­að­stæðn­a. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent