Skuldir íslenskra heimila og fyrirtækja þær 7. hæstu í heimi

Skuldir einstaklinga og fyrirtækja hérlendis eru með þeim hæstu í heiminum. Þær hafa hins vegar lækkað hratt frá hruni þar sem þær náðu sögulegu hámarki.

Skuldahlutfall einstaklinga og fyrirtækja var sögulega hátt á árunum 2007-2011.
Skuldahlutfall einstaklinga og fyrirtækja var sögulega hátt á árunum 2007-2011.
Auglýsing

Íslend­ingar eru meðal skuld­sett­ustu þjóða heims­ins ef  ein­ungis er litið til skulda þegar litið er til heim­ila og fyr­ir­tækja. Þær hafa þó lækkað tölu­vert frá hruni, en árið 2009 setti Ísland sögu­legt heims­met í skulda­söfnun heim­ila.

Sam­kvæmt nýbirtum tölum Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins námu skuld­ir  íslenskra einka­að­ila, ásamt lánum og skulda­bréf­um, 259% af lands­fram­leiðslu árið 2016. Þetta hlut­fall er það sjö­unda hæsta í heimi, en aðeins smá­ríki og skatta­skjól eru ofar á list­an­um. Íslenska skulda­hlut­fallið er það þriðja hæsta í Evr­ópu, en það er ein­ungis hærri í Lúx­em­borg og á Írlandi. Til sam­an­burðar við Ísland eru skulda­hlut­fall ein­stak­linga í Þýska­landi um 105% af lands­fram­leiðslu, eða tveir fimmt­ungar íslenska hlutfallsins.

Auglýsing

Frá­brugðið Norð­ur­löndum

Skuld­setn­ing Íslend­inga er hæst allra Norð­ur­landa og hefur verið það síð­ustu tvo ára­tugi en hefur þó lækkað umtals­vert frá hruni. Árið 2016 var hlut­fallið á Íslandi svipað því norska, en sú staða hefur ekki komið upp síðan 1998. 

Að með­al­tali  hefur hlut­fall ein­stak­lings­skulda í Skand­in­avíu hald­ist á bil­inu 120-250% af lands­fram­leiðslu frá alda­mót­um, en Ísland hefur á sama tíma skorið sig nokkuð úr þeirri þróun á sama tíma. Á upp­gangs­tím­anum fyrir hrun 2002-2008 tóku skuldir íslenskra heim­ila að aukast hratt, ólíkt hin­um, og náði hámarki árið 2009 þegar skuldir heim­ila námu 640%, eins og sést á mynd hér að neð­an.

Skuldir einkaaðila sem hlutfall af landsframleiðslu á Norðurlöndum og í Þýskalandi frá aldamótum. Heimild: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn

Sögu­legt heims­met

Hlut­fallið á Íslandi árið 2009 sker sig reyndar líka úr þegar litið er til ann­arra landa, en þetta er lang­hæstu tölur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um skuld­setn­ingu heim­ila frá því mæl­ingar sjóðs­ins hófust árið 1950. Mæl­ing­arnar eru tæp­lega 3600 tals­ins og ná til 158 landa, en efstu fimm mæl­ing­arnar eru allar frá Íslandi á tíma­bil­inu 2008-2011.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent