Meðalaldur starfsfólks við kennslu í grunnskólum hefur farið hækkandi frá árinu 2000. Haustið 2000 var hann 42,2 ár en haustið 2017 46,7 ár. Á sama tímabili hefur meðalaldur kennara með réttindi hækkað um rúm fjögur ár, í 47,7 ár. Meðalaldur starfsfólks við kennslu án réttinda var töluvert lægri en réttindakennara og hefur svo verið á öllu tímabilinu og var 35,9 ár haustið 2017.
Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar í dag.
Jafnframt segir að færri karlar og fleiri konur séu við kennslu en fyrir 20 árum. Frá skólaárinu 1998 til 1999 hefur starfsfólki við kennslu fjölgað úr rúmlega fjögur þúsund í rúmlega fimm þúsund haustið 2017. Karlar við kennslu voru rúmlega 900 haustið 2017 og hafði fækkað úr tæplega 1.100 haustið 1998. Á sama tíma hefur konum fjölgað úr tæplega þremur þúsundum í rúmlega 4.200 haustið 2017.
Kennurum án kennsluréttinda fjölgar
Á árunum 1998 til 2008 var hlutfall starfsfólks án kennsluréttinda við kennslu í grunnskólum landsins á bilinu 13 til 20 prósent. Hagstofan greinir frá að eftir efnahagshrunið hafi réttindalausum kennurum fækkað og fór hlutfall þeirra lægst í 4,1 prósent haustið 2012.
Síðan 2012 hefur kennurum án kennsluréttinda fjölgað ár frá ári og voru 8,6 prósent af 5.140 starfsmönnum við kennslu haustið 2017. Þá voru 443 starfsmenn við kennslu án kennsluréttinda og hafði fjölgað úr 272 frá hausti 2016.
Nemendum í grunnskólum fjölgar
Nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 45.195 haustið 2017 og hafa aldrei verið fleiri. Þeim fjölgaði um 668, eða 1,5 prósent, frá fyrra ári.
Alls störfuðu 169 grunnskólar á landinu skólaárið 2017 til 2018, einum færri en árið áður. Einkaskólar voru 12 talsins með rúmlega 1.100 nemendur og eru nemendur í fimm ára leikskóladeildum undanskildir. Í sérskólum, sem voru þrír talsins, stunduðu 172 nemendur nám, lítið eitt fleiri en undanfarin ár.
Enn fremur kemur fram í fréttinni að nemendum sem hafa erlent tungumál að móðurmáli hafi fjölgað ár frá ári frá því að Hagstofan hóf að safna inn þeim upplýsingum. Haustið 2017 höfðu 4.470 grunnskólanemendur erlent tungumál að móðurmáli, eða 9,9 prósent nemenda, sem er fjölgun um rúmlega 300 nemendur frá árinu áður. Einhverjir þessara nemenda hafa einnig íslensku sem móðurmál.