Viðskiptastríð stórveldanna hafið

Verndartollar Bandaríkjanna á kínverskar vörur tóku gildi í dag. Um er að ræða refsitolla á ákveðnar kínverskar vörur og Kínverjar hafa lagt samsvarandi tolla á Bandaríkin. Sérfræðingar telja aðgerðirnar afar skaðlegar fyrir bæði löndin.

Trump og Xi
Auglýsing

Nýir vernd­ar­tollar Banda­ríkj­anna á kín­verskar vörur tóku gildi í dag. Þar með má segja að við­skipta­stríð sé hafið milli stó­veld­anna tveggja. Um er að ræða refsi­tolla á ákveðnar kín­verskar vörur og Kín­verjar hafa til gagn­að­gerða með því að leggja sam­svar­andi tolla á Banda­rík­in.

Toll­arnir koma ekki á óvart en Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti lýsti því yfir fyrir nokkru að hann ætl­aði sér að leggja 25 pró­senta inn­flutn­ings­tolla á raf­magns- og hátækni­vörur frá Kína. Ríkin hafa verið í samn­inga­við­ræðum sem ekki hafa borið árang­ur, sem end­aði með því að vernd­ar­toll­anir tóku gildi nú á mið­nætti. Þá hefur Trump hótað enn frek­ari tollum á kín­verskar vörur til Banda­ríkj­anna.

Fram­leið­endur hafa reynt að malda í móinn með því að benda á að aðgerðir Banda­ríkja­for­seta geti leitt til þess að mark­að­ur­inn minn­ki, verð hækki og það hægist á vexti fyr­ir­tækja. Sér­fræð­ingar í Banda­ríkj­unum taka undir áhyggjur þeirra og telja að þetta við­skipta­stríð muni hafa skað­leg áhrif á stöðu bæði neyt­enda og fyr­ir­tækja í báðum lönd­um.

Auglýsing

Trump var tíð­rætt um Kína í kosn­inga­bar­áttu sinni, hversu illa Banda­ríkin væru að fara út úr við­skiptum sínum við Kín­verja og að þar ætti sér stað rík­is­styrktur hug­verka­þjófn­að­ur.

Vöru­skipta­jöfn­uður Banda­ríkj­anna gagn­vart Kína var nei­kvæður um rúm­lega 375 millj­arða doll­ara í fyrra, og hefur hann aldrei verið hærri. Það jók enn á ákveðni Trumps að leggja tolla á inn­flutn­ing á kín­verskum vör­um.

Núver­andi tollar hafa áhrif á vörur sem eru að verð­mæti 34 millj­arða banda­ríkja­dala. Kín­versk stjórn­völd segja Banda­ríkin bjóta reglur Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar og tala um umfangs­mesta við­skipta­stríð sög­unn­ar.

Tollar Kín­verja leggj­ast á til að mynda soja­baun­ir, svína- og fulga­kjöt og korn, en allt eru þetta vörur og fram­leiðsla sem er mik­il­væg í mið­ríkjum Banda­ríkj­anna, þangað sem Trump sækir stóran hluta síns stuðn­ings.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent