Google fær stærstu sekt í sögu ESB

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sektaði tölvufyrirtækið Google um 4,34 milljarða evra, en það er stærsta sekt sem sambandið hefur gefið í nokkru samkeppnismáli.

Sekt Evrópusambandsins á hendur Google er sú stærsta í sögu sambandsins
Sekt Evrópusambandsins á hendur Google er sú stærsta í sögu sambandsins
Auglýsing

Tölvuris­inn Google var sektaður um 4,34 millj­arða evra af fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins í dag vegna brota á sam­keppn­is­lög­um. Sektin jafn­gildir 540 millj­örðum íslenskra króna, en hún er sú stærsta sem sam­bandið hefur gefið nokkru fyr­ir­tæki. 

Í úrskurði Evr­ópu­sam­bands­insgegn tölvu­fyr­ir­tæk­inu segir að þær skorður sem Google hafi sett Android-símum til að auka umferð um eigin leit­ar­vél hafi verið gegn sam­keppn­is­lögum sam­bands­ins. Með þessu segir Evr­ópu­sam­bandið Google hafa notað Android sem tól til að styrkja mark­aðs­ráð­andi stöðu tölvufyrirtækisins.

Auglýsing

Tak­mark­anir Google á hendur Android-síma voru þrí­þætt­ar:

  1. Í fyrsta lagi krafði tölvu­fyr­ir­tækið fram­leið­endur að setja upp leit­ar­vél sína og net­vafra sem skil­yrði þess að kom­ast að smá­forritum Google í gegnum Google Play Store.

  2. Í öðru lagi borg­aði Google fram­leið­endum og  eig­endur far­síma­neta með því skil­yrði að þeir settu upp leit­ar­for­rit fyr­ir­tæk­is­ins á tækjum sín­um.

  3. Í þriðja lagi hindr­aði fyr­ir­tækið fram­leið­endum sem vildu setja upp smá­forrit á þeirra vegum að selja far­síma sem gekk á Android-hug­bún­að­ar­út­gáfum sem væru ósam­þykktar af Google.

Vegna þeirra aðgerða var Google sektað til að greiða 4,34 millj­arða evra vegna brota á sam­keppn­is­lögum Evr­ópu­sam­bands­ins. Sam­kvæmt frétt BBC um málið munu heild­ar­skuldir Google til Evr­ópu­sam­bands­ins nú nema 6,7 millj­örðum evra, en fyr­ir­tækið var dæmt til að borga 2,24 milj­arða í fyrra þar sem fyr­ir­tækið hygldi eigin net­verslun á leit­ar­vél sinn­i. 

Lang­hæsta sektin á eitt fyr­ir­tæki

Sektin á hendur Google er sú stærsta sem Evr­ópu­sam­bandið hefur gefið í nokkru máli og sú lang­hæsta sem sam­bandið hefur gefið einu fyr­ir­tæki. Næst stærsta sekt sam­bandsis var gefin út vegna sam­ráðs vöru­bíl­stjóra í fyrra og nam um 3,8 millj­örð­um, en hún dreifð­ist á þrjú fyr­ir­tæki.  Í þriðja sæti situr svo fyrri sektin til Goog­le, en í því fjórða er hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Microsoft sem var dæmt til að greiða alls 1,46 millj­arða evra vegna ólög­legrar sam­tvinn­unar hug­bún­aðar síns og net­vafrans Explor­er. 

Sam­kvæmt BBC hefur tölvu­fyr­ir­tækið sagst munu áfrýja dómn­um, en Google er nú þegar í miðju áfrýj­un­ar­ferli vegna fyrri dóms fyr­ir­tæk­is­ins. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent