Leiguverð lækkar og íbúðaverð hækkar

Verð á fasteignum hækkaði lítillega milli maí og júní, en leiguverð lækkaði töluvert á sama tímabili. Hækkun á fasteignaverði er mest meðal nýrri bygginga og sérbýlis, en lækkun leiguverðs er mest hjá stúdíóíbúðum.

Leiguverð stúdíóíbúða í Vesturhluta Reykjavíkur lækkaði um fjórðung milli maí og júní.
Leiguverð stúdíóíbúða í Vesturhluta Reykjavíkur lækkaði um fjórðung milli maí og júní.
Auglýsing

Íbúða­verð hækk­aði um 0,8% milli maí og júní á meðan leigu­verð lækk­aði um 2,4%. Leigu­verð stúd­íó­í­búða lækk­aði umfram aðrar íbúða­flokka, en fast­eigna­verð ­sér­býlis og nýrra íbúða hefur hækkað tölu­vert umfram fast­eigna­verð ­fjöl­býlis und­an­farna mán­uði. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Þjóð­skrár Íslands grein­ingar frá­ ­Arion ­banka.

Sér­býli hækkar hraðar

Sam­kvæmt töl­un­um, sem birtar voru í gær og í dag, var hækkun íbúða­verðs mest í sér­býli  milli mán­aða, eða um 1,7%, á meðan verð á fjöl­býli hækk­aði ein­ungis um 0,6%. Sé litið á þróun síð­ustu tólf mán­aða er munur á verð­hækkun tveggja flokk­anna enn meiri, en fast­eigna­verð ­sér­býlis hefur hækkað um 9,3% frá júní í fyrra, til sam­an­burðar við 3,7% hækkun á verði í fjöl­býl­i. 

Hækkun á vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var á milli þess­ara tveggja flokka, en hún nam 0,8% milli maí og júní og 5,2%  milli júní­mán­aða 2017 og 2018. 

Auglýsing

Meiri sveiflur í leigu­verði

Á hinn bóg­inn lækk­aði vísi­tala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 2,4% milli maí og júní. Af tölum Þjóð­skrár er leigu­verðið hins vegar bundið meiri sveiflum en íbúða­verð­ið, síð­ast­liðna 12 mán­uði hefur það hækkað hraðar en íbúða­verð, eða um 7%. Sveifl­urnar eru enn greini­legri þegar leigu­verð er skipt niður eftir flokkum og hverf­um, en leigu­verð studíó­í­búða ­lækk­aði um 25% milli maí og júní í Vest­ur­hluta Reykja­víkur og 13% í Aust­ur­hluta bæj­ar­ins. Á sama tíma hækk­aði leigu­verð tveggja her­bergja ­í­búða í Vest­ur­hlut­anum um 4%, en lækk­aði um 8% í Aust­ur­hlut­an­um. 

Nýrri bygg­ingar hækka hraðar

Grein­inga­deild ­Arion ­banka bendir á að ásett verð í fast­eigna­aug­lýs­ingum hefur þró­ast mis­mun­andi eftir íbúða­flokkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á síð­ustu mán­uð­um, en nýrri eignir virð­ast hafa hækkað mun hraðar í verð­i. 

Und­an­farna tólf mán­uði nam hækkun ásetts verðs í nýrri bygg­ingum um 17,5%, á sama tíma og aug­lýst verð í eldri bygg­ingum hækk­aði ein­ungis um 2,3%. Til sam­an­burðar þá hefur fer­metra­verð í fjöl­býli sam­kvæmt vísi­tölu íbúða­verðs fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið hækkað um 2,9% und­an­farna tólf mán­uð­i. 

Mun­ur­inn er enn meiri ef munur á verð­þróun milli nýrra og gam­alla bygg­inga er ein­ungis skoð­aður frá ára­mót­un­um. Á því tíma­bili hefur aug­lýst verð nýrra bygg­inga hækkað um 7,7% á meðan ásett verð eldri bygg­inga hefur lækkað um 1,0%. Til sam­an­burðar hækk­aði vísi­tala íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 2,4% á tíma­bil­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent