Tollastríð veikir afkomu Alcoa

Alcoa breytti árlegu afkomuspá sína í gær og lækkaði hana um 14% vegna neikvæðra áhrifa bandarískra áltolla. Í kjölfar tilkynningarinnar féll hlutabréfaverð fyrirtækisins um 4%.

Álver Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði.
Álver Alcoa Fjarðaráls á Reyðarfirði.
Auglýsing

Hluta­bréf álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa féllu í verði eftir að hafa lækkað árlegu afkomu­spá sína um 14% í gær. Í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins nefnir það sér­stak­lega banda­ríska inn­flutn­ings­tolla á áli og fram­boðs­skort á Vest­ur­lönd­um.

Vænt tap á áli og súráli

Alcoa birti í gær rekstr­ar­nið­ur­stöður sínar úr öðrum árs­fjórð­ungi þar sem félagið náði að skila 75 milljón Banda­ríkja­dala hagn­aði, eða um 0,39 dala hagn­aði á hlut. Í með­fylgj­andi til­kynn­ingu breytti fyr­ir­tækið einnig rekstr­ar­spá fyrir 2018, en vænt afkoma Alcoa fyrir skatta og fjár­magns­kostnað (EBIT­DA) var lækkuð úr 3,5-3,7 millj­örðum Banda­ríkja­dala niður í 3,0-3,2 millj­arða dala. Einnig er búist við tapi á fram­leiðslu áls og súráls, en hagn­aði í báxít­fram­leiðslu. 

Ótt­ast frek­ari tolla

Í til­kynn­ingu félags­ins var sér­stak­lega vikið að nýtil­komnum tollum Banda­ríkj­anna á áli, en Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti inn­leiddi 10% tolla á álinn­flutn­ing frá Kana­da, Evr­ópu­sam­bandið og Mexíkó fyrir tæpum tveimur mán­uðum síð­an. Í kjöl­farið setti Evr­ópu­sam­bandið og Kína á tolla á ýmsar útflutn­ings­vörur Banda­ríkj­anna og sam­kvæmt frétt CNBC er ótt­ast að frek­ari tolla­lagn­ing muni eiga sér stað á næst­unni. Sam­kvæmt Alcoa munu toll­arnir kosta fyr­ir­tækið 15 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Auglýsing

Til­kynn­ingin kom út rúm­lega fjögur um síð­degið á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna, en sam­kvæmt frétt Reuters lækk­aði hluta­bréfa­verð um fjögur pró­sent eftir lokun mark­aða í gær. 

544 starfs­menn á Íslandi

Alcoa rekur stærsta álver Íslands, en það er stað­sett á Reyð­ar­firði og hefur verið starf­rækt frá árinu 2007. Útflutn­ings­verð­mæti álvers­ins á árinu 2017 voru um 81 millj­arður króna, en það jafn­gildir um 10% pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu. Starfs­menn álvers­ins í fyrra voru um 544.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent