Steingrímur harmar viðbrögð við komu Piu

Forseti Alþingis segist harma þá athygli sem koma Piu Kjærsgaard dró frá fullveldishátíðinni á Þingvöllum í gær.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Auglýsing

Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, harmar að heim­sókn danska þing­for­set­ans Pi­u Kjærs­gaar­d hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíð­ar­fund­inum á Þing­völlum í gær. Þetta kemur fram í nýbirtri frétta­til­kynn­ingu Stein­gríms í dag.

Í til­kynn­ing­unni segir Stein­grímur að hann hafi und­ir­búið þing­fund­inn á Þing­völlum og rætt hann jöfnum öndum við for­sætis­nefnd og for­menn þing­flokk­anna. Sjálf­sagt hafi þótt frá byrjun í ljósi til­efn­is­ins að Pi­a Kjærs­gaar­d yrði í sér­stöku hlut­verki á þessum hátíð­ar­fundi sem for­seti danska þings­ins. Henni væri því boðið til lands­ins sem full­trúa gagn­að­ila að fullveldissamningnum.

Auglýsing

Þar að auki seg­ist Stein­grímur harma að heim­sókn Pi­u hafi verið not­uð  „til að varpa skugga á hátíð­ar­höld­in“ og leyfir sér að trúa því að meint óvirð­ing í garð heim­sókn hennar sé minni­hlut­ar­sjón­ar­mið. 

Kjarn­inn fjall­aði í gær um heim­sókn Pi­u Kjærs­gaar­d í til­efn­i há­tíð­ar­fund­ar Al­þingis í gær vegna 100 ára full­veld­is­af­mælis Íslands­. Pi­a er einn stofn­enda Danska þjóð­ar­flokks­ins og leiddi flokk­inn á árunum 1995 til 2012. Hún er einn þekkt­asti stjórn­mála­maður í Dan­mörku í dag og hefur talað hart gegn fjöl­menn­ingu, inn­flytj­endum og íslam. 

Í kjöl­far fréttaum­fjöll­unar um komu Pi­u ­síð­ast­lið­inn þriðju­dag til­kynnti þing­flokkur Pírata í gær að hann myndi snið­ganga þing­fund­inn, en flokk­ur­inn sagði enga nauð­syn fyrir komu hennar þar sem engin hefð sé fyrir því að erlendir gestir ávarpi þing­fundi af þessu tagi. Píratar sögðu ákvörð­un­ina einnig ófor­svar­an­lega þar sem Pi­a væri einn helsti höf­undur og tals­maður útlend­inga­andúðar í Evr­ópu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent