Helga Vala krefur Steingrím leiðréttingar

Þingmaður Samfylkingarinnar segir forseta Alþingis hafa farið með rangt mál í fréttatilkynningunni sinni í gær um hlutverk Piu Kjærsgaard á aldarfmæli fullveldisins á miðvikudaginn.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar
Auglýsing

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar krefst þess að Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis leið­rétti ummæli sín um við­brögð við hlut­verki Piu Kjærs­gaard á ald­ar­af­mæli full­veld­is­ins. Þetta segir Helga í nýrri stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu sinni.

Kjarn­inn hefur fjallað um heim­sókn danska þing­for­set­ans Piu Kjærs­gaard í til­efni hátíð­ar­fundar Alþingis í gær vegna 100 ára full­veld­is­af­mælis Íslands. Pia er einn stofn­enda Danska þjóð­ar­flokks­ins og leiddi flokk­inn á árunum 1995 til 2012. Hún er einn þekkt­asti stjórn­mála­maður í Dan­mörku í dag og hefur talað hart gegn fjöl­menn­ingu, inn­flytj­endum og íslam.

Í kjöl­far fréttaum­fjöll­unar um komu Piu síð­ast­lið­inn þriðju­dag til­kynnti þing­flokkur Pírata að hann myndi snið­ganga þing­fund­inn, en flokk­ur­inn sagði enga nauð­syn fyrir komu hennar þar sem engin hefð sé fyrir því að erlendir gestir ávarpi þing­fundi af þessu tagi. Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, gekk einnig út af hátíð­ar­fund­inum á meðan Pia flutti ávarp sitt. 

Auglýsing

Í gær birti svo Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, frétta­til­kynn­ingu þar sem hann seg­ist harma að heim­sókn danska þing­for­set­ans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíð­ar­fund­in­um, en hann leyfi sér að trúa því að meint óvirð­ing í garð heim­sókn hennar sé minni­hlut­ar­sjón­ar­mið. 

Að gefnu til­efni. Mér þykir miður að for­seti Alþing­is, Stein­grímur J Sig­fús­son, kjósi að hafa rangt við í...

Posted by Helga Vala Helga­dóttir on Fri­day, July 20, 2018


Í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu sinni fyrr í dag, sem lesa má hér að ofan, segir Helga Vala Stein­grím fara með rangt mál í frétta­til­kynn­ingu sinni í gær sem og í sér­stöku sendi­bréfi sínu til Piu,þar sem for­set­inn biður hana form­lega afsök­un­ar. Stein­grími sé ljóst að mót­mæli Helgu sneru ekki að Piu sem full­trúa danskrar þjóðar heldur hennar fram­göngu og hat­urs­orð­ræðu gagn­vart útlend­ingum og flótta­mönn­um.

Enn fremur segir Helga að Stein­grímur hafi með rang­færslum sínum kosið að stilla upp þeirri sviðs­mynd að þau sem mót­mæli hat­urs­orð­ræðu og standi með mann­rétt­indum allra séu með því að kasta rýrð á danska þjóð. Hún segir að svo sé ekki og krefst jafn­framt að Stein­grímur leið­rétti ummæli sín án taf­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent