Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að mjög athyglisvert hafi verið að fylgjast með uppákomum og umræðunni í kjölfar heimsóknar forseta danska þingsins, Piu Kjærsgaard. Hann segir að margir vinstri menn, og einkum þeir sem honum finnst „barnalegastir“ hafi útmálað Piu sem útlendingahatara og andlit fasismans í Evrópu, en ekkert vitað hver hún var.
Lestu meira
„Sú afstaða hefur ekkert með hatur á útlendingum að gera. Ekkert í stefnu danska þjóðarflokksins eða málflutningi Piu bendir til slíks haturs. Danski þjóðarflokkurinn er dæmigerður félagshyggjuflokkur sem setur velferðarmál í forgang, einkum málefni aldraðra og öryrkja.“
Brynjar segir að lokum að til séu þeir sem hati þá sem eru ósammála þeim. Vilji helst að skoðanir þeirra verði gerðar refsiverðar og reka eigi þá úr vinnu og helst úr samfélaginu. „Það hljómar soldið fasískt“
Hér er stöðuuppfærsla Brynjars í heild sinni: