Verðmiðinn á Icelandair kominn langt undir eigið féð

Verðmiðinn á Icelandair hefur hrapað að undanförnu.

Icelandair - Mynd: Eric Salard
Auglýsing

Verð­mið­inn á Icelandair nemur nú um 40 millj­örðum króna. Hann fór hæst í um 180 millj­arða, og hefur því hrapað um 140 millj­arða á til­tölu­lega skömmum tíma, eða um tveimur árum. 

Það er til marks um breytta tíma hjá félag­inu, að verð­mið­inn er nú tölu­vert undir eigin fé félags­ins. Það nemur um 55 millj­örð­um, sé miðað við stöð­una eins og hún var í lok fyrsta árs­fjórð­ungs. 

Frá því að afkomu­spá félags­ins var upp­færð, 8. júlí síð­ast­lið­inn, má segja að kast­ljósið hafi verið á þessu forn­fræga félagi, sem almenn­ingur á að stærstum hluta í gegnum líf­eyr­is­sjóði lands­manna. 

Auglýsing

Hluthafar Icelandair.Í fyrstu við­skiptum eftir að afkomu­spáin var leið­rétt niður á við, lækk­aði mark­aðsvirði félags­ins um fimmt­ung og sagði þá í til­kynn­ingu frá félag­inu að tími breyttra tíma væri runn­inn upp, með skipu­lags­breyt­ingum og hag­ræð­ing­u. „Sú staða sem við erum að horfa upp á núna er okkur tals­verð von­brigði. Sú þróun með­al­verða sem við gerðum ráð fyrir á síð­ari hluta árs­ins virð­ist ekki vera að ganga eftir og því lækkum við tekju­spá félags­ins. Verð­þróun á mik­il­vægum áfanga­stöðum hefur ekki verið eins og áætl­anir okkar gerðu ráð fyrir og það hefur nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­spá. Horfur hafa farið versn­andi í íslenska ferða­þjón­ustu­hlut­an­um, sér­stak­lega hjá Iceland Tra­vel. Þær miklu skipu­lags­breyt­ingar sem félagið hefur gengið í gegnum und­an­farið ár hafa að mestu gengið vel og gripið hefur verið til fjöl­margra aðgerða í rekstr­inum til að styrkja það til fram­tíð­ar. Árið 2018 er ár mik­illa breytinga og fjár­fest­inga sem gera félag­inu kleift að vaxa og dafna,“ sagði Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri, meðal ann­ars af þessu til­efni.



Icelandair er með mik­il­væg­ustu fyr­ir­tækjum í íslensku atvinnu­lífi vegna umfangs félags­ins í íslenskri ferða­þjón­ustu, sem er hryggjar­stykkið í hag­kerf­inu eins og þró­unin hefur verið á und­an­förnum árum. Um 95 pró­sent erlendra ferða­manna sem koma til lands­ins koma í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl og er Icelandair umfangs­mest þeirra flug­fé­laga sem fljúga til lands­ins. 

Þá eiga líf­eyr­is­sjóðir lands­manna stóran hluta hluta­fjár, en Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærsti eig­andi félags­ins með 13,99 pró­sent hlut.

Heild­ar­eignir félags­ins námu um 1,6 millj­arði Banda­ríkja­dala í lok árs, eða sem nemur um 170 millj­örðum króna. Rekstr­ar­tekjur á ári hafa verið í kringum 1,3 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 140 millj­örðum króna. 

Upp­gjör félags­ins vegna 2. árs­fjórð­ungs verður birt í dag, og fer fram kynn­ing­ar­fundur vegna þess á morg­un, þar sem for­stjóri og fjár­mála­stjóri félags­ins fara yfir rekst­ur­inn á tíma­bil­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent