VR skorar á atvinnurekendur að gefa verslunarfólki frí á mánudaginn og láta frídag verslunarmanna standa undir nafni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR.
Félagið segir fólk oft hafa á orði að einkennilegt sé að eina fólkið sem raunverulega þurfi að vinna á frídegi verslunarmanna sé verslunarfólk. Það sé að sjálfsögðu ekki að öllu leyti rétt enda margar stéttir sem að leggja sitt af mörkum til samfélagsins þennan tiltekna dag, eins og aðra daga, eins og til dæmis heilbrigðisstarfsfólk og lögreglumenn.
„Það er þó miður að síðustu ár hafi það færst í aukana að verslanir og þjónustufyrirtæki hafi opið á frídegi verslunarmanna. Það gerir það að verkum að verslunarfólk, sem þessi dagur er sérstaklega helgaður, þarf í allt of mörgum tilvikum að standa vaktina.“
Samkvæmt kjarasamningum VR er frídagur verslunarmanna stórhátíðardagur en á slíkum dögum er ekki vinnuskylda, nema um slíkt hafi verið samið sérstaklega milli launamanns og atvinnurekanda.