Ísland eftirbátur Norðurlanda í stafrænni stjórnsýslu

Stafræn þjónusta hins opinbera á Íslandi er slökust allra Norðurlanda, samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu Þjóðanna.

Tölva
Auglýsing

Ísland er eft­ir­bátur Norð­ur­landa þegar kemur að staf­rænni þjón­ustu hins opin­bera. Þetta eru nið­ur­stöður skýrslu sem hag-og ­fé­lags­mála­deild Sam­ein­uðu Þjóð­anna birtu nú á dög­un­um.

Skýrslan skoðar staf­ræna stjórn­sýslu í 193 lönd­um, en mark­mið hennar er að meta getu land­anna til að takast á við alheims­mark­mið Sam­ein­uðu Þjóð­anna árið 2030. Þetta er í tíunda skiptið sem sam­tökin birta við­líka skýrslu og er hún byggð á nokkrum vísi­tölum sem bera saman þróun land­anna í ýmsum mála­flokkum staf­rænnar stjórn­sýslu.

75. sætið af 193

Einn þess­ara ­mála­flokka mæl­ir þátt­töku ­borg­ara í opin­berri vef­þjón­ustu sem snýr ákvarð­ana­töku rík­is­ins. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar gefa til kynna að Ísland sé eft­ir­bátur margra þjóða þegar kemur að því, en landið er í 75. sæti á heims­vísu. Hin Norð­ur­löndin eru öll mun ofar á list­an­um, en Dan­mörk og Finn­land deila efsta sæti hans. Nor­egur er svo í ell­efta sæti list­ans og Sví­þjóð í því nítj­ánda.

Auglýsing

Neðst allra Norð­ur­landa

Einnig var vísi­tala fyrir þróun í raf­rænni stjórn­sýslu milli landa birt í skýrsl­unni. Eftir sem áður var Ísland þar eft­ir­bátur ann­arra Norð­ur­landa, en þó nokkuð ofar­lega miðað við önnur lönd í nítj­ánda sæti. Helstu þætt­irnir sem drógu Ísland upp í vísi­töl­unni var helst há ein­kunn á gæð­i ­mannauðs­ins, en aðrir þættir skor­uðu ekki jafn­hátt.

Sam­kvæmt skýrsl­unni er staða Íslands í vísi­töl­unni til marks um að tækni­þróun í raf­rænni stjórn­sýslu sé á betri stað en þjón­usta þeirra gefur til kynna. SÞ nefnir þar ­sér­stak­lega Ís­land í því til­liti ásamt Mónakó og Hvíta-Rúss­landi, en fjar­skipta­inn­viðir og mannauður land­anna þriggja hefur þró­ast hraðar en vef­þjón­ust­an.

Ráð­gjafa­stof­an ­Fúnk­sjón ­gerði nið­ur­stöður skýrsl­unnar að umtals­efni á Face­book-­síðu sinni fyrr í vik­unni, en sam­kvæmt þeim hefur Ísland farið upp um átta sæti frá könnun sam­tak­anna fyrir tveimur árum síð­an. ­Fúnk­sjón telur einnig að nýleg fyr­ir­heit rík­is­stjórn­ar­innar um þennan mála­flokk gefi von um að miklar úrbætur verði á þessu sviði á næstu árum. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent