Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins og fyrrverandi varaþingmaður Vinstri grænna, mun gefa kost á sér í embætti forseta ASÍ á þinginu sem sett verður 24. október næstkomandi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í morgun.
Hún segir í yfirlýsingunni að síðustu áratugi hafi hallað undan fæti í samfélaginu hér heima og heiminum öllum. Græðgi sé talin til kosta og auðurinn hefur safnast á fáar hendur. Þeir sem lifa af sívaxandi auði sínum hafi misst tengsl við samfélagið og kjör almennings. Grunnskilyrði góðs lífs, svo sem viðráðanlegt húsnæðisverð, séu undirseld spákaupmennsku. Vinnandi fólk eigi allt sitt undir því hvort stórfyrirtæki telji það nógu arðbært að veita sómasamlegt húsnæði á viðráðanlegum kjörum.
„Við þetta bætist að verkalýðshreyfingin á í vök að verjast þegar kemur að réttindabrotum og félagslegum undirboðum. Upplýsingum um lög, reglur og réttindi er haldið frá fólki til að geta klipið af launum þeirra og félagsleg undirboð eru orðin varnarlína þeirra sem starfa í verkalýðshreyfingunni.
Enn fremur hefur skattkerfið, sem er mælikvarði á siðmenntað samfélag, á síðustu árum verið sveigt í þágu hinna ríku gegn vinnandi fólki. Áhrif tekna og búsetu á menntun og heilsu almennings hafa aukist til muna og sjást nú á stærðargráðu sem við höfum ekki séð í áratugi. Hættan er sú að til verði tvö aðskilin samfélög ríkra og fátækra, þar sem hinir efnameiri kaupa sig fram fyrir röðina í heilsugæslu, menntun og annarri almannaþjónustu,“ segir hún í yfirlýsingunni.
Hún segir að Íslendingum bíði það verkefni að auka lífsgæði hinna mörgu og stemma stigu við græðgi hinna fáu. Verkalýðshreyfingin sé mikilvæg sem aldrei fyrr og hún má ekki bregðast á ögurstundu. Hér á landi starfi ein sterkasta verkalýðshreyfing heims og það sé mikið ábyrgðahlutverk að ná að sameina hana um hag okkar allra. Það verði mikilvægasta verkefni næsta forseta ASÍ.