Fórnarlömbum hryðjuverka fækkar um fjórðung milli ára

Dauðsföll vegna hryðjuverkaárása hefur farið fækkandi um allan heiminn. Mest fækkar þeim í Mið-Austurlöndum og í Evrópu, en þeim fjölgaði lítillega í Suðaustur-Asíu og Norður Ameríku.

Frá hryðjuverkaárásinni í Stokkhólmi í fyrra.
Frá hryðjuverkaárásinni í Stokkhólmi í fyrra.
Auglýsing

Alls lét­ust rúm­lega 26 þús­und manns vegna hryðju­verka árið 2017, sem er 24 pró­senta fækkun frá því á árinu á und­an. Fjöldi fórn­ar­lamba hefur fækkað tölu­vert á Mið-Aust­ur­löndum og í Evr­ópu, en þeim fór nokkuð fjölg­andi í Suð-Aust­ur Asíu og Norð­ur­-Am­er­íku í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum gögn­um Global Ter­r­oris­m Data­base

Gögnin eru gefin út af Lands­sam­tökum Banda­ríkj­anna í átaka­fræðum við háskól­ann í Mar­yland, en þau hafa greint frá hverri ein­ustu skil­greindu hryðju­verka­árás í heim­inum frá árinu 1970. Enn fremur fylgir stutt lýs­ing á hverri árás sem átt hefur sér stað frá árinu 1997. 

Sam­kvæmt gögn­unum voru alls 10.900 hryðju­verka­árás­ir fram­kvæmd­ar í heim­inum í fyrra. Meiri­hluti þeirra sér stað í fjórum lönd­um: Írak (23%), Af­ghanistan (13%), Ind­land (9%) og Pakistan (7%). Alls lét­ust 26.400 manns vegna þeirra, en það er lækkun um 24% miðað við í fyrra. Meira en helm­ingur mann­tjóns­ins var þremur lönd­um:  Írak (24%), Af­ghanistan (23%) og Sýr­landi (8%). 

Auglýsing

Minna í Mið-Aust­ur­lönd­um, meira í Norð­ur­-Am­er­íku

Þrátt fyrir að stór hluti hryðju­verka­árása og ­mann­tjóns vegna þeirra hafi átt sér stað í Mið-Aust­ur­löndum fór þeim þó fækk­andi milli 2016 og 2017, en þau lækk­uðu um meira en helm­ing í Tyrk­land­i, Yem­en, Sá­dí-­Ar­ab­íu og Líb­íu. Sömu­leiðis fækk­aði  dauðs­föllum í Evr­ópu um tæpan helm­ing milli ára, mest í Vest­ur­-­Evr­ópu. Á hinn bóg­inn fjölg­aði hryðju­verka­árásum í Nepal, Kamer­ún­, ­Myan­mar og ­Keníu um meira en helm­ing. Í Banda­ríkj­unum stórjókst einnig ­mann­tjón ­vegna hryðju­verka milli ára, einkum vegna árás­ar­innar í Las ­Veg­a­s í októ­ber. 

Mann­skæð­ustu hryðju­verka­sam­tökin voru þau sem kenna sig við íslamskt ríki (ISIL), en mann­tjón vegna þeirra nam rúmum sjö þús­und­um. Hins vegar hefur dauðs­föllum vegna árása ­sam­tak­anna lækkað ört milli ára, eða um 40 pró­sent frá árinu 2016. Önnur skæð sam­tök eru Talí­banar með tæp fimm þús­und fórn­ar­lömb og Al-S­habaab ­með tæp tvö þús­und fórn­ar­lömb. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent