Guðmundur Gunnarsson verður bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar þar sem meirihluta mynda Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.
Guðmundur er með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík og B.A. próf í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur undanfarin þrjú ár gegnt starfi framkvæmdastjóra AFS á Íslandi en áður stýrði hann alþjóðasviði 66° NORÐUR og var einnig frétta- og dagskrárgerðarmaður RÚV um nokkurra ára skeið.