Fjórir einstaklingar hafa nú ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Neytendasamtökunum, þeir Breki Karlsson forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, Guðmundur Hörður Guðmundsson fyrrverandi formaður Landverndar, Guðjón Sigurbjartsson viðskiptafræðingur og Jakob S. Jónsson leiðsögumaður og leikstjóri. Framboðsfrestur er til 15. ágúst.
Nýr formaður verður kjörinn á þingi Neytendasamtakanna 27. október næstkomandi.
Stjórn NS auglýsti eftir framboðum til formanns og stjórnar um miðjan júní síðastliðinn og verður kosningin rafræn. Allir sem skrá sig á þingið hafa rétt til að taka þátt í kosningu formanns og stjórnar.
Staðsetning þingsins verður tilkynnt síðar en þingið verður jafnframt rafrænt til að auðvelda fólki þátttöku m.a. þeirra sem búa utan höfuðborgarsvæðisins, segir á vefsíðu samtakanna. Samkvæmt lögum samtakanna þurfa félagsmenn að skrá sig á þingið eigi síðar en á hádegi þann 20. október. Þeir einir geta tekið þátt í þingi samtakanna sem eru félagsmenn og eru skuldlausir við samtökin viku fyrir þingið. Greiðsla félagsgjalda er ekki möguleg á þinginu.
Segir enn fremur á vefsíðu samtakanna að skráningar fullgildra félagsmanna sé grunnur að kjörskrá. „Rafrænar kosningar til stjórnar verða framkvæmdar með notkun persónuauðkenna þar sem fólk notar ýmist rafræn skilríki eða Íslykil. Hvorki verður fylgst með mætingu á þingið né verður þátttakendalisti birtur. Kjörskrá verður eytt að loknum kosningum. Gert er ráð fyrir að kosningar hefjist um hádegi þann 27. október og standi til hádegis daginn eftir. Þann 28. október mun kjörnefnd tilkynna úrslit kosninga, ný stjórn tekur við og þingi slitið.“
Hægt er að skrá sig á þingið á vefsíðu samtakanna.