Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra er ekki sannfærður um að hvalveiðar hér við land séu sjálfbærar. Þá hefur ráðherra einnig efasemdir um að hagsmunir Íslendinga af nýtingu hvala séu eins miklir og stundum er haldið fram.
Þetta kemur fram í svari umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur um rannsóknir á mengun í Hvalfirði. Var hann spurður hvort hann styddi að hvalveiðistefna Íslendinga verði endurmetin.
„Ráðherra telur rétt að staldrað verði við, hvalveiðistefna Íslendinga verði endurmetin og málið skoðað heildstætt út frá umhverfissjónarmiðum sem og út frá samfélagslegum og efnahagslegum sjónarmiðum,“ segir í svarinu.
Í svarinu kemur fram að í reglugerð um hvalveiðar, sem heimilar veiðar á hrefnu og langreyði, sé meðal annars kveðið á um leyfi til veiða á hrefnu 2018 og 2019 og á langreyði árið 2018, þannig að núgildandi reglugerðarákvæði um leyfi til veiða á stórhvölum rennur út í árslok 2018. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sé ekki farið að huga að frekari breytingum á reglugerðinni.
„Stefna Íslands í hvalveiðimálum hefur byggst á því að viðhalda rétti til að nýta hvalastofna við landið með sjálfbærum hætti líkt og aðrar lifandi auðlindir hafsins,“ segir í svarinu.
Telur miður að áhrif frá hvalskurði séu ekki vöktuð sérstaklega
Ráðherra var einnig spurður hvort hann teldi ástæðu til frekari rannsókna á mengun í Hvalfirði sem meðal annars kynni að stafa frá hvalskurði og vinnslu á langreyðum í Hvalstöðinni.
Hann segir að margvísleg vöktun hafi átt sér stað í Hvalfirði og megi þar nefna að umhverfisvöktun f fram vegna iðjuveranna á Grundartanga samkvæmt áætlun sem Umhverfisstofnun hefur samþykkt. Skýrslu um niðurstöður umhverfisvöktunar iðnaðarsvæðisins á Grundartanga vegna ársins 2017 og samanburð við undangengin ár sé einnig að finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar sem og annað ítarefni er varðar umhverfisvöktun í Hvalfirði.
Guðmundur Ingi segir enn fremur að honum sé ekki kunnugt um rannsóknir á mengun í Hvalfirði sem tengjast beint hvalskurði og vinnslu á langreyðum í Hvalstöðinni og telur miður að áhrifin frá þessari starfsemi hafi ekki verið vöktuð sérstaklega.
Í svarinu kemur fram að Hvalur hf. hafi starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd Vesturlands fyrir vinnslu hvalaafurða á Litla-Sandi í Hvalfjarðarsveit. Í starfsleyfinu sé kveðið á um varnir gegn mengun ytra umhverfis og eftirlit með starfseminni.
Verði áframhald á hvalveiðum og þar með þessari starfsemi telur ráðherra ástæðu til frekari rannsókna á mengun í Hvalfirði sem meðal annars kynni að stafa af hvalskurði og vinnslu á langreyðum í Hvalstöðinni.