Mikill áhugi er meðal félagsmanna aðildarfélaga BSRB og Alþýðusambands Íslands á íbúðum sem Bjarg íbúðafélag mun leigja tekjulágu fólki á vinnumarkaði. Í lok júlí höfðu alls 818 umsóknir borist félaginu, þar af 56 frá Akureyri og nágrenni.
Frá þessu er greint í frétt á vefsíðu BSRB.
Skráning á biðlista hófst þann 15. maí síðastliðinn. „Allar umsóknir sem bárust fyrir lok júlí voru settar í pott og dregið um röð þeirra á biðlista. Þetta var gert til að gæta jafnræðis þar sem reiknað var með að einhvern tíma myndi taka að koma upplýsingum um að opnað hefði verið fyrir umsóknir til félaga í aðildarfélögum BSRB og ASÍ,“ segir í fréttinni.
Leiguheimili að norrænni fyrirmynd
Á vefsíðu íbúðarfélagsins kemur fram að Bjarg sé sjálfseignarstofnun sem rekin sé án hagnaðarmarkmiða. Félaginu sé ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um sé að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd.
Bjarg starfar samkvæmt lögum um almennar íbúðir. Í lögunum eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu. Þá þurfa umsækjendur að vera félagsmenn stéttarfélags innan ASÍ eða BSRB.
Búið að draga um röð umsækjenda
Í frétt BSRB segir að nú hafi verið dregið um röð umsækjendanna 818 á biðlistanum og geti þeir sem sóttu um séð hvar þeir standa með því að fara inn á vef Bjargs og skoða „mínar síður“.
„Ein númeraröð er fyrir alla óháð íbúðartegund eða staðsetningu. Áfram er hægt að skrá sig á biðlistann og er skráningum raðað upp í þeirri röð sem þær berast og virkjast þegar greiðsla staðfestingargjalds hefur verið innt af hendi.
Í hvert sinn sem íbúðir eru lausar til umsókna sendir Bjarg póst á alla aðila á biðlista með nánari upplýsingum. Ef einstaklingur sem er á biðlista hefur áhuga á tiltekinni staðsetningu þarf að senda umsókn. Úthlutun hlýtur sá umsækjandi sem uppfyllir öll skilyrði um úthlutun hefur lægsta númer á biðlista, að teknu tilliti til forgangs. Sótt er um ákveðna íbúðartegund eða íbúðarstærð sem hentar út frá fjölskyldustærð og í tilteknu húsi. Ekki er hægt að sækja um ákveðnar íbúðir sérstaklega,“ segir í fréttinni.
Stefnt á að afhenda 1. júlí á næsta ári
Bjarg hefur þegar hafið framkvæmdir við uppbyggingu íbúðakjarna á tveimur stöðum innan Reykjavíkur, í Spöng í Grafarvogi og í Úlfarsárdal. Öll vinna er á áætlun og er reiknað er með þeir sem eru á biðlista geti sótt um fyrstu íbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu í september næstkomandi. Afhending íbúða til leigutaka gæti hafist 1. júlí 2019.
Fleiri framkvæmdir eru í undirbúningi hjá félaginu víða um land, og eru alls 815 íbúðir annað hvort á undirbúnings- eða framkvæmdastigi, segir á síðu BSRB.