Paul Manafort, sem var kosningastjóri Donalds Trumps um tíma, var í gær sakfelldur fyrir skattsvik, bankasvik og fyrir að hafa ekki greint frá innistæðum leynilegra félaga í skattaskjólum.
Fjölmiðlar í Bandaríkjunum túlka dómin sem sigur fyrir sérstakan saksóknara, Robert S. Mueller, og starfsmenn hans.
Þeir ákærðu Manafort fyrir að fela milljónir Bandaríkjadala á aflandsreikningum til þess að forðast skatta og að hafa logið ítrekað til þess að geta fengið 20 milljónir dollara að láni hjá fjármálastofnunum.
Ákæran gegn Manafort var í 18 liðum og var hann dæmdur fyrir 8, en kviðdómurinn gat ekki komist að niðurstöðu í 10 liðum.
Cohen líka
Fyrrverandi lögmaður Trumps, Michael Cohen, játaði síðan í gær á sig umfangsmikil fjár- og skattsvik. Hann hefur undanfarið verið til rannsóknar vegna mögulegra skattsvika og fleiri svika við fjármálastofnanir, og hefur sekt hans nú verið sönnuð og viðurkennd.
Tengdist hún meðal annars 20 milljóna Bandaríkjadala lánveitingum til fjölskyldureksturs has, á sviði leigubílastarfsemi.
Hann sagðist enn fremur hafa greitt tveimur konum að beiðni Trumps Bandaríkjaforseta, til að tryggja að þær myndu ekki tala um samband sitt við forsetann.
Cohen sagði að greiðslurnar hefðu átt að hafa áhrif á forsetakosningarnar 2016. Þetta er brot á lögum um fjármögnun kosingabaráttu, og segir á vef CNN að margir telji Trump sjálfan nú vera í vandræðum. Ekki eru öll kurl komin til grafar enn, hvað þetta varðar, en Trump hefur enn ekki tjáð sig um þessi mál.
Annarri konunni greiddi Cohen 150 þúsund Bandaríkjadali en hinni, klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels, greiddi hann 130 þúsund Bandaríkjadali. Var það gert til að Daniels þegði um samband hennar og Trump sem varði í stuttan tíma, á meðan hann var kvænt Melaniu Trump, eiginkonu sinni og forsetafrú.
Daniels steig fram fyrr á árinu og sagði að sér hefði verið hótað ef hún myndi tjá sig um sambandið við forsetann, en hún gerði það samt, og leiddi það meðal annars til þess að rannsókn hófst á Cohen. Var húsleit framkvæmd á skrifstofu hans í apríl og hefur rannsókn staðið yfir síðan.