Kjarnafæði og Norðlenska hefja samrunaviðræður

Eigendur Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um að hefja viðræður um samruna félaganna.

Kjarnafæði - Norðlenska
Auglýsing

Eig­endur Kjarna­fæðis og Norð­lenska hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að hefja við­ræður um sam­runa félag­anna. Kjarna­fæði er í eigu bræðr­anna Eiðs og Hreins Gunn­laugs­sona en Norð­lenska er í eigu Búsæld­ar, sem aftur er í eigu um 500 bænda.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu sem send var út í dag.

Í henni segir að með sam­runa félag­anna verði til öfl­ugur aðili í íslenskri mat­væla­fram­leiðslu sem búi að sterkum vöru­merkjum Kjarna­fæðis og Norð­lenska. Það sé mat eig­enda félag­anna að sam­einað félag sé betur í stakk búið til að veita við­skipta­vinum sínum og birgj­um, ekki síst bænd­um, hágæða þjón­ustu á sam­keppn­is­hæfu verði.

Auglýsing

Við­ræður fyr­ir­tækj­anna eru með fyr­ir­vara um áreið­an­leika­könn­un, sam­þykki Sam­keppn­is­yf­ir­valda og sam­þykki hlut­hafa­fundar Búsæld­ar.

Kjarna­fæði var stofnað árið 1985 af bræðr­unum Eiði og Hreini Gunn­laugs­sonum og fram­leiðir úrval kjöt­vara, einkum undir vöru­merk­inu Kjarna­fæði. Hjá félag­inu starfa 130 manns og fer starf­semin að mestu fram á Sval­barðs­eyri. Til við­bótar við rekstur Kjarna­fæðis er afurð­ar­stöð SAH á Blöndu­ósi í sömu eigu, en þar eru unnin 52 árs­verk, ásamt um 34 pró­sent hlut í Slát­ur­fé­lagi Vopn­firð­inga, þar sem rekin eru sauð­fjár­slát­ur­hús.

Norð­lenska varð til árið 2000 við sam­runa KEA og Kjöt­iðj­unnar Húsa­vík, en stækk­aði árið 2001 þegar félagið sam­ein­að­ist þremur kjöt­vinnslum Goða. Félagið er í eigu Búsæld­ar, félags kjöt­fram­leið­enda í Eyja­firði, Þing­eyj­ar­sýslum og á Aust­ur- og Suð­aust­ur­landi, en hlut­hafar Búsældar eru um 500 bænd­ur. Um 190 árs­verk eru unnin hjá félag­inu og skipt­ist starf­semin á milli Akur­eyr­ar, þar sem rekið er stór­gripa­slát­ur­hús og kjöt­vinnsla, Húsa­vík­ur, þar sem rekin er sauð­fjár­slát­ur­hús og kjöt­vinnsla fyrir sauð­fjár­af­urð­ir, Hafnar í Horna­firði þar sem rekið er slát­ur­hús og sölu­skrif­stofu í Reykja­vík. Félagið fram­leiðir úrval kjöt­vara, einkum undir vöru­merkj­unum Norð­lenska, Goði, Húsa­vík­ur­kjöt, KEA og Bauta­búr­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent