Kóreskt fyrirtæki kaupir CCP á 46 milljarða

Stærsti tölvuleikjaframleiðandi Íslands hefur verið seldur. Starfseminni verður haldið áfram í sjálfstæðri einingu og stúdíó CCP í Reykjavík verður áfram starfrækt.

Hilmar Veigar Pétursson er forstjóri CCP.
Hilmar Veigar Pétursson er forstjóri CCP.
Auglýsing

Kóreski leikja­fram­leið­and­inn Pearl Abyss hefur keypt íslenska tölvu­leikja­fram­leið­and­ann CCP á 425 millj­ónir dali, eða 46 millj­arða króna. CCP mun áfram starfa sem sjálf­stæð heild og reka leikja­stúdíó í Reykja­vík, London og Sjang­hæ. Pearl Abyss naut ráð­gjafar Deutsche Bank og lög­manns­stof­anna Kim & Chang og LEX við kaup­in. CCP til aðstoðar voru The Raine Group og lög­manns­stof­urnar White & Case LLP og LOGOS. Stjórn­endur CCP verða áfram þeir sömu og fyrir og áform fyr­ir­tæk­is­ins um að flytja í nýjar höf­uð­stöðvar í Vatns­mýr­ina eru óbreytt.

Hilmar Veigar Pét­urs­son, for­stjóri CCP, segir að Pearl Abyss sé eitt mest ­spenn­andi og hrað­vax­andi fyr­ir­tæk­ið í leikja­iðn­aðnum í dag. „Það hefur margt nýtt fram að færa hvað varðar tækni, getu og fram­tíð­ar­sýn. Ég held að fyr­ir­tækin geti lært mikið hvort af öðru. Við erum spennt að taka saman höndum með þeim og ná nýjum hæðum með bæði fyr­ir­tæk­in, leik­ina sem við þróum og - það sem mestu skiptir – spilar­ana okk­ar.“  Hilmar Veigar átti sjálfur 6,5 pró­sent hlut í CCP og getur því átt von á að fá um þrjá millj­arða króna fyrir hlut sinn.

Risa­stórt fyr­ir­tæki

Pearl Abyss leikja­fyr­ir­tækið var stofnað árið 2010 og gaf fyrst út fjöl­spil­un­ar­leik­inn Black Des­ert Online í Kóreu árið 2014. Frá því að Pearl Abyss var skráð á hluta­bréfa­markað árið 2017 hefur fyr­ir­tækið unnið mark­visst að því að kaupa alþjóð­lega leikja­fyr­ir­tæki á borð við CCP til að vaxa enn hraðar á heims­vísu. Verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins við síð­ustu við­skipti í kóresku kaup­höll­inni var jafn­virði um 300 millj­arða íslenskra króna. Pearl Abyss sló tekju­met á fyrri helm­ingi þessa árs þegar far­síma­út­gáfa Black Des­ert Mobile kom út í Kóreu.

Auglýsing

Aðal­vara CCP er líka fjöl­spil­un­ar­leik­ur, EVE Online, sem er einn elsti og virt­asti slíki leikur í heimi.

Í til­kynn­ingu er haft eftir Robin Jung, for­stjóra Pearl Abyss, að fyr­ir­tækið sé gríð­ar­lega ánægt með að fá CCP í hóp­inn. „ CCP er reynslu­mik­ill leikja­fram­leið­andi með­ ­yfir 15 ára ­reynslu og þekk­ingu á staf­rænni dreif­ingu. Þau hafa staðið sig gríð­ar­lega vel í því að ­styrkja og við­halda spil­ara­hóp EVE og við von­umst til að læra af þeim og nýta þá þekk­ingu í leikjum Pearl Abys­s. Ég er full­viss um hin þekktu hug­verk CCP ásamt reynslu þeirra af alþjóð­legri útgáfu muni efla bæði fyr­ir­tækin í að halda á­fram að þróa bestu fjöl­spil­un­ar­leik­ina.“

Novator verið leið­andi hlut­hafi í þrettán ár

Stærsti eig­andi CCP er félagið NP ehf., sem er í eigu Novator Partners, með 27,2 pró­sent hlut. Auk þess á Novator ehf. 8,46 pró­sent hlut auk þess sem annað félag sam­stæð­unar á hlut. Sam­tals eiga aðilar tengdir Novator 43,32 pró­sent. Eig­endur þess­ara félaga eru m.a. Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, Birgir Már Ragn­ars­son og Andri Sveins­son og hafa þeir verið leið­andi fjár­festar í CCP frá árinu 2005. Aðrir stórir fjár­festar hafa verið sjóð­irnir General Cata­lyst Partners og New Enter­prise Associ­ates. 

Birgir Már hefur verið stjórn­ar­for­maður CCP und­an­farin ár. Hann segir að á þeim tíma sem lið­inn sé frá því að Novator kom að CCP hafi fyr­ir­tækið vaxið úr því að hafa nokkra tugi starfs­manna í að reka starfs­stöðvar víða um heim með hund­ruðum starfs­manna. „Hilmar Veigar Pét­urs­son og allt hans skap­andi og ein­arða teymi hefur byggt upp félag, sem Novator lætur nú stolt í hendur Pearl Abyss. Saman verða þessi félög firna­sterk og í góðri stöðu til að halda áfram að vaxa.“

Salan í píp­unum í nokkurn tíma

Sala á CCP hefur lengi verið í píp­un­um. Greint var frá því í lok árs 2016 að stærstu eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins væru að íhuga sölu. Sam­kvæmt frétt Bloomberg á þeim tíma var talið að sölu­verðið gæti orðið allt að 900 millj­ónir evra, enda hafði CCP skilað met­hagn­aði á árinu 2015, alls um 2,7 millj­örðum króna, eftir að hafa tapað 8,7 millj­örðum króna árið áður­. ­Ljóst er, miðað við verð­mið­ann á við­skipt­unum sem greint var frá í morg­un, að verð­mið­inn hefur lækkað umtals­vert á síð­ustu tveimur árum.

Afkoma CCP hefur verið jákvæð und­an­farin tvö ár. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist um 21,5 millj­ónir dala, tæp­lega 2,4 millj­arða króna, árið 2016 og 2,7 millj­ónir dala, um 300 millj­ónir króna, í fyrra.  

Þrátt fyrir þetta var ráð­ist í hóp­upp­sagnir hjá CCP í lok októ­ber í fyrra. Þá voru kynntar breyt­ingar sem höfðu áhrif á um 100 af rúm­lega 370 starfs­mönnum á þeim tíma, þar af um 30 starfs­menn á Íslandi. Starfs­stöð CCP í Atl­anta var lokað í aðgerð­un­um, starf­stöðin í Newcastle var seld og þróun sýnd­ar­veru­leika­leikja var hætt, að minnsta kosti tíma­bund­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent