Félagsmálaráðherra gerði kjaramálin að umfjöllunarefni í ræðu sinni í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í þinginu í gær. Ásmundur Einar Daðason, félagsmálaráðherra sem er einnig ráðherra vinnumarkaðarins, talaði sérstaklega um N1 og launagreiðslur til forstjóra fyrirtækisins sem sé í meirihlutaeigu íslensku lífeyrissjóðanna. Sagði hann nú berast fréttir af því að fyrirtækið ætli að taka upp kaupaukakerfi eða bónusgreiðslur á nýjan leik. „Ég segi við lífeyrissjóðina og aðra sem eiga í þessu fyrirtæki að þessari vitleysu verður að ljúka. Þessa tillögu verður að draga til baka.“
Ásmundur kom inn á launahækkanir á einkamarkaði hjá stórum fyrirtækjum og bar þau saman við lægstu laun. „Sem dæmi má nefna hækkuðu laun þriggja lægst launuðu hópanna um 8 til 9 prósent milli áranna 2015 og 2016. Í krónum talið eru þetta hækkanir að meðaltali undir 40 þúsund krónum á mánuði. Sú hækkun er hins vegar 25 sinnum lægri en til dæmis hækkun launa forstjóra N1 á milli áranna 2015 og 2016, en þá hækkaði forstjórinn um rúmlega 1 milljón króna á mánuði.“
Ásmundur sagði alla hafa takið á sig byrðar til að rífa upp efnahagslífið eftir fall bankanna. Fyrir hrunið hafi toppar samfélagsins verið komnir á himinhá laun með risabónusum, sumir á árslaunum hærri en það sem verkamaður gæti látið sig dreyma um á heilli starfsævi. „Nú hafa margir á tilfinningunni að í gangi sé launaskrið hjá efstu lögum samfélagsins og að skilja eigi eftir bæði millistéttina og lægri tekjuhópa. Já, það er þyngra en tárum taki að til sé fólk og börn í þessu landi sem geta ekki stundað tómstundir, geti ekki haldið fermingarveislur og fleira sökum lágra tekna foreldra sinna. Þegar slíkar sviðsmyndir finnast enn er verk að vinna.“
Ráðherrann sagði stjórnvöld hafa komið að kjarasamningum með einhverjum aðgerðum til að liða fyrir að samningar náist. Ríkisstjórnin hafi lagt ríka áherslu á gott samstarf við aðila vinnumarkaðarins. „Stöðugleiki efnahagslífsins og aukinn jöfnuður í samfélaginu getur farið saman í komandi kjarasamningum en til þess að svo geti orðið verða allir að leggja eitthvað af mörkum, ekki bara sumir.“